Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Eiður Guðnason (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins að það komi fram að það er ekki áhugaleysi sem veldur því að iðnrh. er ekki hér í salnum í augnablikinu eins og ég hygg að hv. 1. þm. Reykv. viti, heldur hitt að á þessum lokastundum þingsins er verið að reyna að finna leiðir til að greiða úr lausn mála þannig að þingstörf geti gengið greiðar fyrir sig. Hefur nú hæstv. iðnrh. gengið í salinn og hygg ég að þá sé hægt að halda umræðunni áfram.