Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Þar sem mjög styttist starfstími þingsins og því er ekki treystandi að hv. 5. þm. Vestf. komi því í verk að skila þessu máli úr nefnd þar sem svo skammur tími lifir af þinginu en vilji hæstv. iðnrh. er mikill að fá þetta samþykkt, þá sýnist mér að menn snúist gegn flutningi till. með því að leggja til að henni sé vísað til nefndar og tek undir það sem hv. 3. þm. Reykv. sagði að hann teldi að till. væri ætlað að sofna í nefndinni. Þar sem ég er andvígur því að það verði gert og tel að menn séu að hafa hæstv. iðnrh. sem aðhlátursefni með því að láta hann fyrst flytja svo gott mál inn á þingið og svæfa það svo strax fyrir honum segi ég nei.