Íslensk heilbrigðisáætlun
Mánudaginn 18. mars 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna óska hv. 2. þm. Reykv. hefur forseti orðið við því að fresta þessari umræðu um 10 mínútur, en hv. 2. þm. Reykv. telur sér nægja að finna flokksmenn sína á þeim tíma. Ef hv. 2. þm. Austurl. kynni að geta notað þann tíma til að hitta sína menn úr hv. félmn. er forseti fús til að gera 10 mínútna hlé svo að hægt sé að afgreiða þetta mál farsællega á þessum fundi. --- [Fundarhlé.]