Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Í umræðunni um það mál sem hér liggur fyrir á dagskránni höfum við kvennalistakonur undanfarna daga og jafnvel nætur reynt að koma sjónarmiðum okkar á framfæri hér í þingsölum. Ég vil í tilefni þeirra orða og yfirlýsinga sem fallið hafa, bæði frá hæstv. iðnrh. og hæstv. forseta Sþ., vísa á bug staðhæfingum um að með því séum við að brjóta gegn lýðræðinu. Það er grundvallarhugsjón lýðræðisins að sjónarmið minni hlutans fái ekki síður að koma fram en sjónarmið meiri hlutans. Það er alvarlegt og mjög hættulegt lýðræðinu ef þeir sem ráða ferðinni vilja ekki viðhalda þessari grundvallarreglu og við slíkri hugsun vil ég eindregið vara.
Það hefði verið heldur meiri reisn yfir því og meira nauðsynjamál að verja þessum síðustu stundum þingsins fyrir komandi kosningar í að ræða atvinnustefnu fyrir Íslendinga. Við hefðum átt að vera hér að ræða nýjar hugmyndir um stefnu í atvinnumálum þjóðarinnar í stað þess að eyða tímanum í að ræða um byggingu nýs álvers á suðvesturhorni landsins.
Kvennalistakonur hafa frá upphafi hafnað álveri sem bjargræði í íslensku atvinnulífi. Við teljum hóflega nýtingu íslenskra fallvatna, sem miðast við þarfir okkar Íslendinga, vera það sem koma skal, að við nýtum okkur orkuna við uppbyggingu atvinnu sem miðast við íslenskar aðstæður og tekur tillit til umhverfisins. Stóriðjusjónarmið hafa ráðið því að virkjunarframkvæmdir hafa verið bæði miklar og hraðar og hafa leitt til skuldasöfnunar erlendis. Stóriðja boðar þar að auki aukin fjárhagsleg ítök erlendra aðila hér á landi sem við teljum að geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Ekki þarf að minna á mengunarhættuna sem fylgir álveri eins og reynslan af álverinu í Straumsvík sannar. Þar hafa mengunarvarnir lengst af verið ófullnægjandi. Það er dýrt að setja upp fullkominn mengunarvarnabúnað og iðnrekendur hafa tregðast við að setja hann upp, bæði hér á landi og ekki síður víða erlendis. Þar stafar mengun frá reykháfum iðjuvera og fellur með súru regni sem þegar hefur valdið miklum skemmdum á gróðri og lífríki víða í Evrópu. Nú er svo komið að á degi hverjum deyr ein dýra- eða plöntutegund út í heiminum. Og þar sem hæstv. umhvrh. er hér staddur og heyrir mál mitt, þá vildi ég beina til hans þeirri fyrirspurn hvað líði gerð þess starfsleyfis sem væntanlega mun verða að setja fyrir hugsanlegt álver og hvaða kröfur verða gerðar um mengunarvarnir þegar upp er staðið.
Með hliðsjón af þeim staðreyndum sem við okkur blasa, við getum hugsað t.d. til austurhluta Evrópu nú og við getum líka litið í kringum okkur í okkar umhverfi hér á Íslandi, en miðað við stöðu umhverfismálanna í heiminum ættum við Íslendingar að miða öll okkar umsvif og atvinnuuppbyggingu við að ekki hljótist spjöll af. Við erum svo gæfusöm að hafa um marga kosti að velja og við getum byggt upp umhverfisvænt atvinnulíf. Í því sambandi má minna á skýrslu forsrh. sem var nefnd fyrr í þessari umræðu,
ef ég man rétt, en þar er einmitt lögð mikil áhersla á að kynna Ísland sem hreint land þar sem gott er að koma og finna sér griðland í menguðum heimi. Í því sambandi vil ég minna á að tært vatn er nú fimm sinnum dýrara en bensín og við eigum örugglega mikla möguleika á því að flytja út hreint íslenskt vatn ef við gáum að okkur.
Þessa dagana er mikið rætt um landbúnaðarmál og þann samdrátt sem nauðsynlegur er í sauðfjárræktinni aðallega. Mikil óvissa ríkir um hvaða áhrif sá búvörusamningur sem nú hefur verið undirritaður mun hafa á byggðina í landinu. Margir eru svartsýnir og setja samasemmerki milli þessa nýja búvörusamnings og þess að byggð muni hrynja víða um landið. Það hefði verið nær að við stæðum hér og leituðum úrræða til að byggja upp atvinnulíf úti í dreifbýlinu. Í stað þess er öll áherslan hér á suðvesturhorninu og nú veit ég ekki hvað hefur orðið um þau neyðarblys sem hæstv. fjmrh. skaut á loft á dögunum þegar hann boðaði að nú hefði hann fundið tvo milljarða til þess að tvöfalda Reykjanesbrautina og flýta framkvæmdum við byggingu flugskýlis á Keflavíkurflugvelli. En það er greinilegt að ef af þessum áformum verður, svo og af byggingu álvers á þessum sömu slóðum, mun óhjákvæmilega skapast þar mikið þensluástand sem hefur í för með sér mun meiri byggðarröskun en nú er orðin. Það hefði því verið fróðlegt að fá að heyra í þessari umræðu hvaða áætlanir liggja fyrir um atvinnuuppbyggingu annars staðar í landinu. Það væri sennilega fyrirspurn til margra hæstv. ráðherra, þeir eru hins vegar ekki mjög margir staddir
hér inni núna. En það hefði, eins og ég sagði í upphafi máls míns, verið öllu meira skapandi og nauðsynlegra fyrir okkur Íslendinga að við værum hér að leggja síðustu hönd á að móta atvinnustefnu fyrir Íslendinga. Ég man ekki betur en þegar Borgfl. gekk til liðs við núv. hæstv. ríkisstjórn hafi einmitt einn ráðherranna fengið það sérstaka verkefni að hefja leit að atvinnustefnu fyrir Íslendinga. Ein skýrsla birtist í kjölfar þeirrar vinnu og nefnd sem hann skipaði gaf út. Síðan hefur ekki heyrst orð um þá atvinnustefnu eða þær hugmyndir sem þar komu fram. Hvorki fyrr né síðar eftir það hefur heyrst neitt um hvaða áform eru uppi um framhald á þeirri vinnu.
Ég þarf ekki að tíunda í mörgum orðum rök okkar í Kvennalistanum fyrir því að við höfnum stóriðju algjörlega. Við vitum að hún veitir tiltölulega fáum atvinnu miðað við þá fjárfestingu sem er að baki hverju starfi. Fjárfestingin er meiri en í flestum öðrum atvinnugreinum. Stóriðja er ekki vænlegur kostur og dugar skammt, þrátt fyrir margfeldisáhrif, þegar hugað er að því að mæta þörfum þeirra sem koma út á vinnumarkaðinn á næstu árum og áratugum. Mun fleiri störf yrðu að vísu bundin við uppbyggingu virkjana og álvers í nokkur ár. Það yrði tímabundið þensluástand, en hvað svo? Störfin sem tengjast uppbyggingunni eru fremur einhæf og framkvæmdirnar allar ásamt því fjármagni erlendis frá sem þeim fylgir eru líklegar til að valda verulegri þenslu og verðbólgu. Til að minnka slíka röskun munu stjórnvöld að öllum líkindum, og því hefur reyndar verið lýst yfir að nauðsynlegt muni reynast, draga úr fjárfestingum innan lands. Það þýðir auðvitað ekki annað en það að önnur atvinnuuppbygging verður látin sitja á hakanum.
Nú er til umfjöllunar hér í þinginu frv. til laga frá hæstv. sjútvrh. um viðbrögð vegna aflabrests í loðnu. Frv. hans gerir ráð fyrir að taka á vanda útgerðarinnar og þeirra sjómanna sem loðnuveiðar stunda en ekki er gert ráð fyrir að leysa þann atvinnuvanda sem mun fylgja úti í byggðarlögum landsins. Og alls ekki þeirra einstaklinga sem þar missa vinnu. Þess var getið í greinargerð með því frv. að komið hefði til tals innan ríkisstjórnarinnar að flýta opinberum framkvæmdum til þess að bæta byggðarlögum þetta upp en ekki hefur heyrst orð um það meir. Ef af stóriðjuáformunum verður þá er auðvitað engin von til að svo verði.
Það er mikið talað um að auka fjölbreytni atvinnulífsins og fjölga störfum á Íslandi. Stóriðja svarar því einungis í mjög takmörkuðum mæli þörfinni fyrir fleiri störf og meiri fjölbreytni í atvinnulífi á landsbyggðinni. Hún leysir t.d. ekki atvinnuvanda kvenna sem eru jafnan fyrstar látnar víkja þegar atvinnuleysi segir til sín.
Ég efast stórlega um efni þeirrar tillögu sem hér liggur frammi, ég verð að segja það. Hún kemur mér fyrir sjónir sem einhvers konar sjálfsstyrking fyrir hæstv. iðnrh. því að í grg. með tillögunni kemur fram og einnig hefur það komið fram núna í brtt. frá fjh.- og viðskn. neðri deildar að lagðar eru fram tillögur um að veita heimildir, bæði til að kaupa jarðnæði og hefja virkjanir vegna undirbúnings undir byggingu nýs álvers. Það hljóta að vera fyrst og fremst þessar tillögur og þær heimildir sem þær fela í sér sem ráða því hvort hægt verður að halda áfram viðræðum. Og það er auðvitað spurning með þá upphæð sem hér er verið að fara fram á, 580 millj. kr., til handa Landsvirkjun til að hefja undirbúning. Er það verjandi að fara út í svo mikla fjármögnun án þess að fyrir liggi ákveðinn raforkusamningur við hina erlendu aðila?
Þetta er einhver allra stærsta fjárfesting sem farið hefur verið út í og það er rétt að minna á að margir óvissuþættir tengjast málinu. Það eru t.d. þættir um hvernig verð á áli muni þróast á næstu árum því að fram kemur að raforkuverðið verður tengt verði á áli. Það hefur margoft komið fram í þessari umræðu hér að álverð hefur verið mjög sveiflukennt hin síðari ár og margt bendir til að notkun þess muni minnka í framtíðinni. Þá má einnig benda á óvissuþætti sem fram koma í skýrslu hæstv. iðnrh., svo sem eins og það hverjar tekjuskattsgreiðslur gætu hugsanlega orðið frá álverinu. Á bls. 10 í skýrslunni kemur fram að ekki er hægt að áætla þær með neinni vissu því að þær tekjur munu líka fara eftir því hvernig álverð þróast. Það eru því margir og stórir óvissuþættir í þessu máli og ekki að undra að þingmenn telji sig þurfa að leita upplýsinga hjá hæstv. ráðherrum um það hvernig þessum málum sé háttað nú.
Ég hafði á sínum tíma, virðulegur forseti, undirbúið mig til að spyrja hæstv. ráðherra ýmissa spurninga varðandi þetta mál í heild sinni. Þær hafa flestar ef ekki allar komið fram þannig að ég ætla ekki að tefja mál mitt nú þegar svo er orðið áliðið dags. En vegna ummæla sem fram komu í fjölmiðlum núna um helgina vildi ég beina einni spurningu til hæstv. forsrh. ef hann er að finna í húsinu.
Virðulegur forseti. Það er margt sem þarf að skýra í þessu máli en ég vildi fá að beina einni spurningu til hæstv. forsrh. Hún tengist viðtali sem við hann var haft nú um helgina, nánar tiltekið 16. mars á Bylgjunni, kl. rúmlega fimm síðdegis. Þar kemur fram nokkuð undarleg yfirlýsing sem ég held að þingheimur verði að fá svar við. Hann er í þessu viðtali að gagnrýna hæstv. iðnrh. fyrir skort á samráði um þetta stóra og mikla mál. Hann segir, með leyfi forseta: ,,Samningar um nýtt álver, sem er að sjálfsögðu sú stærsta framkvæmd sem hér hefur nokkru sinni verið ráðist í þegar virkjanirnar eru taldar, krefjast þess að um slíka framkvæmd sé mjög breið samstaða. Í raun þjóðarsátt og því miður finnst mér ekki hafa verið leitað þeirrar þjóðarsáttar eins og vera ber. Þegar ráðast á í svona mikla framkvæmd þá þurfa allir aðilar í raun að koma að allt frá upphafi. Svo hefur því miður ekki verið gert í þeim samningum sem nú hafa verið gerðir.``
Nú vildi ég mega spyrja hæstv. forsrh. um hvaða samninga hann er þar að tala? Hvort þegar hafa verið gerðir einhverjir samningar varðandi álmálið? Ef ég man rétt þá var hér á ferðinni sl. haust eitthvert svokallað minnisblað sem virtist vera mikilvægara fyrir suma hæstv. ráðherra en aðra. Það var gert mjög lítið úr því, það væri aðeins minnisblað. Ég vil biðja hæstv. forsrh. að upplýsa hvort hér hafi þá í raun verið um samning að ræða. Hvort það sé þetta minnisblað sem hann á við.
Við stöndum frammi fyrir því að spyrja hvernig við ætlum að byggja upp umhverfi okkar og atvinnulíf á næstu árum. Hæstv. utanrrh. hefur verið meðal þeirra sem hafa gagnrýnt kvennalistakonur og talið okkur vera afturhaldssamar og skorta framtíðarsýn. Ég vil segja við hann að hann er haldinn skammsýni. Hann horfir á nútíðina og ekkert lengra. Þetta andóf okkar gegn álveri er auðvitað fyrst og fremst vegna þess að við horfum inn í framtíðina og horfum á málið í heild sinni. Við höfnum álveri vegna þess að dýrmætasta auðlind okkar er hrein og óspillt náttúra. Mengun frá álveri er mikil, hvað þá ef slakað er á kröfum um mengunarvarnir, sem við höfum ekki enn fengið upplýst hvort á að gera. Brennisteinsdíoxíðmengun í andrúmslofti mun aukast um 50% og allt lífríki í nágrenni verksmiðjunnar verður í hættu. Síðast en ekki síst, álver er heilsuspillandi vinnustaður. Spurningin er: Viljum við fórna náttúru Íslands fyrir erlenda stóriðju?
Eins og ég kom að hér áðan þá eru margir óvissuþættir varðandi fjármálahlið þessa máls. Eitt er það að raforkuverðið verði tengt verði á áli. Það mun hafa í för með sér mikla áhættu.
Þá vil ég einnig vekja athygli á að allt bendir til þess að álnotkun muni dragast saman. Annars vegar og vonandi vegna samdráttar í vopnaframleiðslu og hins vegar vegna þess að settar hafa verið fram tilgátur um tengsl álumbúða og ýmissa sjúkdóma sem hrjá mannkynið.
Íslendingar munu tapa á álsamningnum fyrstu 15 -- 20 árin, m.a. vegna afsláttar á raforkuverðinu og ekki er ljóst hvort tekjuskattur mun skila sér. Síðast en ekki síst ber auðvitað að nefna að Landsvirkjun tekur mikla áhættu varðandi vexti sem þarf að borga af erlendum lánum vegna nýrra virkjana. Það er auðvitað stórmál að ætla landsmönnum að greiða hærra verð fyrir raforku til eigin nota vegna samninga við erlendan aðila.
Þá kemur að því sem snýr að vinnumarkaðnum sjálfum. Við höfum margoft bent á að álver leysir ekki vanda á vinnumarkaði og væntanlega verður dregið úr öðrum opinberum framkvæmdum til þess að forðast þenslu. Það mun ekki síst bitna á landsbyggðinni. Allir útreikningar um aukinn hagvöxt standast ekki þar sem ekki er tekið tillit til þess sem eyðileggst í auðlindum okkar. Og erlendar skuldir þjóðarinnar munu auðvitað aukast vegna virkjana. Niðurstaðan verður því sú að þensla og verðbólga verða óhjákvæmilegir fylgifiskar byggingar nýs álvers.
Við kvennalistakonur viljum líta á aðra kosti. Við höfum nefnt það oft áður í þessari umræðu að við hefðum heldur viljað sjá orku fallvatnanna notaða til þess að hefja í fyrstunni tilraunaframleiðslu á vetni. Vegna þess að allt bendir til að vetni verði eldsneyti framtíðarinnar. Og ekki er minna um vert að framleiðsla og notkun vetnis veldur ekki umhverfismengun.
Auðlindir landsins, fiskimið, jarðvarmi og fallvötn ásamt hreinu lofti, tæru vatni og ómenguðu umhverfi eru ómetanleg auðæfi í iðnvæddum heimi. Við Íslendingar erum fyrst og fremst matvælaframleiðendur og sérstaða okkar á að byggja á kröfunni um ómengaða framleiðslu sem virðir þol lands og sjávar. Þá höfum við einnig bent á ferðaþjónustu sem mikilvæga atvinnugrein og vænlegan kost fyrir okkur ef okkur auðnast að standa rétt að málum. Við eigum að einbeita okkur að okkar eigin auðlindum og spyrja okkur sjálf: Hvað getum við gert hér í okkar eigin landi á okkar eigin forsendum?
Það kom ýmislegt fram í fjölmiðlum hér um helgina þar sem hæstv. ráðherrar fóru að henda á milli sín einhverjum hörðum bolta. Það kom fram í viðtali við hæstv. iðnrh. í Ríkisútvarpinu að kvöldi 16. mars að ríkt hafi þjóðarsátt um stóriðjuna. Í mínum huga er þjóðarsátt orðin nokkuð vafasamt orð til að nota um alla skapaða hluti sem er þröngvað upp á fólk. Hér er það álver sem er boðið upp á sem hinn eina atvinnukost sem við stöndum frammi fyrir. Það er auðvitað fjarri lagi að hægt sé að tala um þjóðarsátt þegar fram hefur komið í umræðunni hér í þinginu að margir hv. þm. í stjórnarflokkunum eru t.d. alls ekki sáttir við að álver verði byggt hér á suðvesturhorninu. Þeir eru e.t.v. sammála því að álver verði byggt en það er engin sátt um að það verði staðsett þar sem áætlað er nú á þessari stundu. Það hefur m.a. komið fram í máli og skrifum hv. 3. þm. Norðurl. e., sem er flokksbróðir hæstv. iðnrh.
Miðað við hina fjárhagslegu áhættu, sem verið er að taka með því að byggja álverið, er ekki óeðlilegt að fram komi tillaga eins og sú sem borin er fram við lánsfjárlög hér í hv. neðri deild af hv. 4. þm. Norðurl. v. þar sem kveðið er á um að lánsfjárheimild til virkjana verði ekki nýtt fyrr en fyrir liggur fyrirvaralaus samningur um raforkuverðið.
Virðulegur forseti. Ég hirði ekki um að endurtaka þær spurningar sem fram hafa verið bornar. Þetta eru meira og minna grundvallarspurningar sem snerta málið og hafa verið bornar fram af öðrum ræðumönnum sem hafa talað á undan mér. Hæstv. iðnrh. hefur væntanlega skrifað þær hjá sér og mun svara þeim hér á eftir. Ég vænti þess einnig að hæstv. umhvrh. taki til máls og sömuleiðis hæstv. forsrh.
Ég vil láta það verða mín síðustu orð um þetta mál að þessu sinni að við getum gert svo ótalmargt annað en að reisa álver. Um leið og við erum búin að reisa álver er svo ótalmargt sem við ættum að gera og vildum gera sem við getum ekki gert af því að við erum búin að spilla umhverfinu.