Samningar um álver
Mánudaginn 18. mars 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti hefur átt gott samstarf við hv. þingheim í dag við að koma málum áfram. Forseti vill nú fara þess á leit að reynt verði að stefna að því að koma þessu máli til nefndar á næsta klukkutímanum, ef hv. þm. mögulega treysta sér til, þar sem ætlunin er að halda hér deildafundi að loknum þessum fundi. Menn vænta að það þurfi ekki að vera mjög langir deildafundir en mikilvægt þó að þeir verði haldnir, þannig að forseti vill fara þess á leit að menn reyni heldur að stytta mál sitt.