Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Skúli Alexandersson) :
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um þetta frv. á nokkrum fundum og hefur nefndin fengið á sinn fund Þórarin V. Þórarinsson og Hannes G. Sigurðsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Hauk Halldórsson frá Stéttarsambandi bænda, Gísla Karlsson frá Framleiðnisjóði, Snorra Olsen og Þórhall Arason frá fjmrn. og Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra.
    ,,Nefndin fjallaði ítarlega um skattalega meðferð á greiðslum ríkissjóðs til bænda vegna sölu þeirra á fullvirðisrétti. Nefndin náði samkomulagi um breytingartillögu, sem meiri hl. flytur, varðandi þetta atriði og er lagt til að ákvæðið bætist aftan við frv. sem bráðabirgðaákvæði. Allir bændur, sem selja ríkissjóði fullvirðisrétt, einnig þeir sem eiga óvirkan rétt vegna riðuveiki eða leigu á réttinum, njóta þess skattahagræðis sem fram kemur í ákvæðinu. Einnig er birt sem fylgiskjal við þetta nefndarálit bréf ríkisskattstjóra frá 6. maí 1987 um ráðstöfun söluhagnaðar þegar um sölu búmarks eða fullvirðisréttar mjólkur er að ræða með tilliti til ákvæða 4. mgr. 14. gr. laga nr. 75/1981.
    Meiri hl. nefndarinnar telur rétt að sú breyting verði gerð á 2. gr. frv. að frestur til að kaupa ný hlutabréf í stað seldra verði lengdur úr 15 dögum í 30.
    Að lokum leggur meiri hl. nefndarinnar til að ný grein bætist við frv. sem breyti 106. gr. tekju - og eignarskattslaganna. Greinin heimilar skattstjóra að bæta 25% álagi á þá skattstofna sem áætlaðir eru á framtalsskyldan einstakling sem ekki skilar framtali á réttum tíma. Þannig eru til að mynda hjón, sem eru samsköttuð og annað er ríkisstarfsmaður, krafin um álag af öllum tekjum ef þau skila ekki skattframtali, þrátt fyrir að annað hjónanna hafi staðið skil á öllum sínum sköttum. Breyting miðar að því að heimila skattstjóra að taka tillit til að hve miklu leyti innheimta gjalda hefur farið fram í gegnum staðgreiðslu ef framtalsskyldur aðili skilar ekki framtali á réttum tíma.
    Talsverð umræða spannst í nefndinni um hvort það álag, sem skattstjóra er heimilt að leggja á áætlaða skattstofna, ætti að vera 25% eða lægra. Í tillögu meiri hl. nefndarinnar er lagt til að álagið verði 25% en einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.``
    Meiri hl. nefndarinnar skipa Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson, Guðrún J. Halldórsdóttir, með fyrirvara, og Eiður Guðnason sem skrifar einnig undir með fyrirvara.