Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég skrifaði undir brtt. og nál. með fyrirvara. Það kemur til af því að ég hef nokkuð aðra sýn á þessi mál en aðrir nefndarmenn.
    Fjárfesting í hlutabréfum hefur mjög aukist undanfarin ár og virðast ákvæði laganna hafa náð tilgangi sínum. Eins og fram kemur í greinargerð með frv. þá hefur fjöldi þeirra sem hlutabréf kaupa vaxið frá árinu 1984 úr 936 einstaklingum í 2.930, þ.e. um 2.000 aðila. Má telja það nokkuð góðan árangur á þeim fimm, sex árum sem þetta hefur verið í gildi og hefur vaxið almest núna síðasta árið, þ.e. árið 1989. Þetta þýðir að ákvæðin virðast hafa náð tilgangi sínum. Það má ætla að ákvæðin hafi verið svo rúm sem raun bar vitni, þ.e. upphæðin sem draga mátti frá sem skattfrjáls svo há og það að enginn tími var ákveðinn um eignarhaldið, í þeim tilgangi að hrinda af stað skriðu hlutabréfakaupa. Og það virðist hafa tekist. Aðrar skattaívilnanir af arði hlutabréfa ættu nú að nægja þessari þróun. Eins og fólk veit hér þá er arður af hlutabréfum að mestu leyti skattfrjáls.
    Tilgangurinn með þessum lagaákvæðum var einnig sagður vera sá að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækja og vera má að þessi verði árangurinn. En meiri líkur verður nú samt að telja á því að almenningur fjárfesti í fyrirtækjum sem vel standa hvað eiginfjárstöðu varðar fyrir heldur en þeim sem helst þurfa að bæta eiginfjárstöðu sína. Í athugasemdum við lagafrv. var þess getið að hér á landi væru 77 fyrirtæki nú sem að stærð og hlutafjármagni stæðust kröfur sem gerðar eru í lögum um stærð og hluthafafjölda svo að hlutabréf þeirra séu frádráttarbær til skatts. Smáfyrirtæki og ung fyrirtæki, fyrirtæki, sem kannski byggja á mjög góðum hugmyndum en eru fjárvana og hafa mesta þörf fyrir að bæta eiginfjárstöðu sína, græða ekkert á ákvæðum þessara laga. Með þessum lögum er verið að gefa fólki sem er fjárhagslega vel sett möguleika á skattaívilnun á meðan skattleysismörk almennt eru allt of lág. Ég tel að það hefði verið mikið nær fyrir ríkisvaldið að hækka almenn skattleysismörk til muna jafnhliða því sem skattaprósenta mundi þá vera hækkuð. Þannig gætu margir notið góðs af aukinni ívilnun og bætt eiginfjárstöðu sína, fjárfest í hlutabréfum hvaða fyrirtækis sem er, stórra og smárra, og þannig mundi almenningur taka virkari þátt í eflingu atvinnulífs og efnahagslífs og lítil og ný fyrirtæki fá möguleika á að blómgast. Ber ekki að efa að það er megintilgangur þessara laga að styðja við þann atvinnurekstur sem mest þarf á því að halda.
    Í brtt. nefndarinnar er getið um að við leggjum til að í stað 15 daga frests til að kaupa hlutabréf á ný komi 30 daga frestur. Tel ég það sjálfsagt og til bóta. Ég tel ekki að það skipti neinu máli hvort viðkomandi hlutabréfaeigandi er skuldbundinn til að eiga þau í tvö ár eða þrjú. Ég held að tvö ár dugi mjög vel og jafnvel væru 13 mánuðir nóg.
    Einnig ber nefndin fram tillögu um að framtalsskyldur aðili, sem ekki hefur talið fram til skatts, skuli þó njóta þeirra greiðslna sem hann greiðir á réttum tíma til skattsins og fái ekki refsiprósentur ofan á þá upphæð sem hann hefur þegar innt af hendi. Þetta hefur verið iðkað hingað til og er hróplegt ranglæti og tel ég það til stórra bóta ef þessi ákvæði koma inn. Í tillögunum er rætt um 25% álag á skattstofnana og tel ég, þó að ég greiði atkvæði með þessum brtt. í heild, að þessi 25% upphæð sé allt of há og tel raunar tillögur 2. minni hl. um 15% miklu manneskjulegri og nær því sem vera ætti. Einnig kom nefndin með brtt. varðandi skattaskil bænda. Ég tel allar þær tillögur til stórra bóta.
    Um það hvort hundraðshluti sem á að fara í fjárfestingarsjóð sé 15% eða 10% ætla ég ekki að ræða mjög mikið eða gera neinar athugasemdir við að öðru leyti en því að mér finnst að úr því að skattaprósentan sjálf er lækkuð úr 50% ofan í 45% þá komi það nokkuð á móti hinni rýrnuninni sem óneitanlega er fyrir fyrirtækin.
    Í heild tel ég þetta frv. með þeim brtt. sem meiri hl. gerir miða mjög í rétta átt og hljóti að koma landsmönnum til góða og styð það því með þeim fyrirvara sem ég nú hef gert.