Valgerður Sverrisdóttir :
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að ræða efnislega um frv. í heild sinni. Ég styð það. En mig langar til að koma hér á framfæri þakklæti til hv. fjh.- og viðskn. fyrir að hafa tekið inn sem brtt. það frv. sem ég ásamt fleiri hv. þm. flutti hér fyrr í vetur. Það er í 2. lið brtt. á þskj. 1059, sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Telji framtalsskyldur aðili ekki fram til skatts innan tilskilins frests má skattstjóri bæta allt að 25% álagi við þá skattstofna sem hann áætlar. Þó skal skattstjóri taka tillit til að hve miklu leyti innheimta gjalda hefur farið fram í staðgreiðslu. Ríkisskattstjóri setur nánari reglur um þetta atriði.``
Hér er ekki orðrétt tekið upp úr frv. sem ég gat um áðan heldur er þetta efnislega samhljóða því.
Á þskj. 1068 flytur 2. minni hl. fjh.- og viðskn. brtt. við þessa brtt. þess efnis að álagið skuli vera að hámarki 15%. Má segja að vegna þess að þjóðfélagið er nú orðið verðbólgulaust sé ekki úr vegi að lækka þessa prósentu en ég tel samt sem áður að að þessu sinni sé það góður áfangi sem gerð er tillaga um í brtt. meiri hl. fjh.- og viðskn. og kannski ástæða til þess á næsta þingi að fara í þetta frv. í heild sinni og breyta því í samræmi við breytt þjóðfélag, sem við skulum vona að verði áfram verðbólgulaust. Í þessum áfanga treysti ég mér því ekki til að styðja þá brtt. við brtt. sem kemur fram á þskj. 1068 þó svo að efnislega geti ég kannski fallist á þau rök. Ég tel að þessi breyting eigi að koma síðar.