Guðrún J. Halldórsdóttir :
Virðulegi forseti. Hv. 8. þm. Reykv. Guðmundur H. Garðarsson nefndi það, sem ég hafði raunar gert grein fyrir í mínu áliti, að það sem helst þyrfti að gera núna væri einmitt að hækka skattleysismörk. Kvennalistinn og a.m.k. hv. 8. þm. Reykv. eru því á sama máli um skattleysismörkin og þá geysilegu nauðsyn sem ber til þess að hækka þau.
Hvað viðkemur refsipunktaákvæðinu þá tók ég það líka fram áðan að við vildum lækka þessa prósentu. Við mundum telja 10% betri kostinn, en ásættanlegt að hafa hana 15% og við stöndum við það. Við styðjum það einnig að þetta mál verði tekið upp aftur í fjh.- og viðskn. milli 2. og 3. umr. ef ske kynni að fólk sættist á þessa breytingu.
Þetta er réttlætismál. Eins og fram hefur komið er það eitt af því sem ríkisstjórnin gumar hvað mest af hvað verðbólgan hefur verið færð niður. Því á þá ekki að færa þessa verðbólgukenndu 25% tölu niður í eitthvað sem líkist verðbólgustiginu í dag? Mér sýnist það mjög eðlilegt. Þeir menn sem mest tala um hvað verðbólgustigið er komið langt niður, eins og hæstv. fjmrh., ættu því manna best að styðja þetta.