Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þær góðu undirtektir sem ræða hans ber vott um. Ég vil aðeins vekja athygli þingdeildarmanna á því um hvaða breytingu við erum að tala í skattalögunum. Samkvæmt skattalögum eins og þau eru nú er einungis um heimildarviðurlög að ræða. Telji framtalsskyldur aðili ekki fram til skatts innan tilskilins frests má skattstjóri bæta 25% álagi við þá skattstofna sem hann áætlar.
    Hér er talað um að telji framtalsskyldur aðili ekki fram til skatts innan tilskilins frests má skattstjóri bæta 25% álagi við þá skattstofna sem hann áætlar. Þetta er orðrétt eins. ( Fjmrh.: Nei. Viðbótin er ,,allt að``. Það má því vera minna eftir þessa breytingu en í gildandi lögum verður það að vera 25%.) Já, það er rétt, ,,allt að`` er innskotið.
    Þetta er mér á hinn bóginn ekki nægilegt. Ég vil ítreka það, hæstv. fjmrh., sem ég sagði í ræðu minni áðan, að þetta 25% refsiákvæði er ekki fast í lögunum. Í sumum tilvikum tölum við um 10% álag. Í 4. mgr. 14. gr. laganna segir: ,,Ef þessum skilyrðum er ekki fullnægt telst söluhagnaðurinn framreiknaður, skv. 2. mgr. 13. gr., með skattskyldum tekjum þess árs þegar skilyrðið er rofið að viðbættu 10% álagi.``
    Þarna erum við að tala um 10% viðbót ef menn nýta sér 4. mgr. 14. gr. 25% viðurlögin eru því ekki undir öllum kringumstæðum.
    Ég er þakklátur fyrir það að nefndin skuli hittast milli 2. og 3. umr. Ég tel líka nauðsynlegt að fara aðeins yfir málið í samhengi eftir að brtt. eru fram komnar eins og gert hefði verið ef málið hefði verið fyrr á ferðinni. Það má kannski segja að það sé eini kosturinn við hinar löngu ræður Hjörleifs Guttormssonar í Sþ. ef þær mættu verða til þess að létta ólögum af skattgreiðendum og launafólki í þessu landi.