Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir framhaldsnefndaráliti á þskj. 1072 við frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum. Þetta framhaldsnefndarálit er frá allshn. Svo segir í nál.:
,,Nefndin kom saman milli 2. og 3. umr. og fékk á sinn fund Ólaf W. Stefánsson, skrifstofustjóra í dómsmrn., til að ræða frekar um frv. í tengslum við þá breytingu á réttarfari sem verður á miðju ári 1992 er til framkvæmda koma lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Við þá breytingu verða allir dómendur umboðsstarfalausir og þess vegna verður sú aðgreining dómara eftir því hvort þeir fara með umboðsstörf (þ.e. bæjarfógetar og sýslumenn) eða ekki (þ.e. hæstaréttardómarar) úr sögunni. Héraðs - og hæstaréttardómarar verða allir umboðsstarfalausir 1. júlí 1992.
Í 34. gr. stjórnarskrárinnar eru ákvæði um að umboðsstarfalausir dómarar hafi ekki kjörgengi. Við áðurgreinda breytingu á réttarfari er eðlilegt að binda þetta ákvæði við hæstaréttardómara eina, eins og ákvæðið hefur jafnan verið túlkað fram að þessu, þannig að ekki komi til þess að héraðsdómarar missi kjörgengi.
Rétt þykir að gera einnig breytingu á 61. gr. stjórnarskrárinnar. Sú regla gildir um hæstaréttardómara að þeir halda nú fullum embættislaunum frá starfslokum, ef þau eru eftir 65 ára aldur dómarans, til æviloka. Byggist hún á túlkun síðasta málsliðar 61. gr. stjórnarskrárinnar. Að óbreyttu liggur því fyrir að slík regla gildi einnig um hina nýju héraðsdómara sem taka til starfa 1. júlí 1992 því að þeir verða umboðsstarfalausir. Með þeirri breytingu, sem hér er lögð til, er tekinn af allur vafi um stöðu umboðsstarfalausra dómara sem veitt er lausn frá embætti er þeir hafa náð fullra 65 ára aldri. Óbreytt regla gildir um hæstaréttardómara, þeir skulu eigi missa neins af í launum sínum þótt þeim sé veitt lausn fullra 65 ára. Um héraðsdómara fer hins vegar eftir ákvæðum almennra laga, sbr. 35. gr. laga um meðferð einkamála í héraði og eftir 1. júlí 1992 8. gr. laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, nr. 92/1989, en samkvæmt þeim skal héraðsdómari, sem veitt er lausn fullra 65 ára, njóta sömu eftirlauna og hann hefði fengið ef hann hefði gegnt starfinu til sjötugs.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þessari breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.``
Undir þetta nál. rita allir nefndarmenn í hv. allshn. efri deildar.
Þessu til viðbótar er rétt að ég, sem formaður nefndarinnar, skýri af hverju þessi brtt. er gerð við frv. um eina málstofu, sem hér hefur verið til umræðu, í stað þess að flytja sérstakt frv. um þessa breytingu. Það hefur verið mín skoðun, og ég veit fleiri nefndarmanna, að þegar gerð er breyting á stjórnarskránni eigi ekki að gera hana í pörtum heldur eigi að taka eins margar breytingar inn og hægt er til að
stjórnarskráin sé ekki í meðförum beggja deilda á sama tíma heldur eigi að taka þær nauðsynlegu breytingar sem þurfi að gera í einu.
Með þessari brtt. er ekki verið að taka neitt á því máli sem var rætt við 2. umr., þ.e. um deildaskiptinguna. Hér er aðeins verið að bjarga fyrir horn máli sem upp hefur komið vegna laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds til að taka af öll tvímæli um það að
héraðsdómarar falli ekki undir 61. gr. stjórnarskrárinnar sem fæli það í sér að upp undir 100 héraðsdómarar yrðu á fullum launum til æviloka eftir að starfstíma þeirra er lokið.
Ég held að ég hafi gert nokkuð glögga grein fyrir því í hverju þessi breyting felst og mælist til þess að hún verði samþykkt og frv. hljóti afgreiðslu á þessu þingi.