Stjórnarskipunarlög
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Virðulegi forseti. Í greinargerð með nafnakalli um þetta mál, við 2. umr. hygg ég að hafi verið, gerði ég grein fyrir því að ég teldi að upphaflega fylgiskjalið með frv., um þingsköp Alþingis, orkaði tvímælis í nokkrum greinum og þó aðallega einni, þ.e. þeirri að þar er gert ráð fyrir því að við sérstakar aðstæður megi takmarka málfrelsi þingmanna að tillögu forsrh. Það var tvennt sem ég gagnrýndi í þessu efni, annars vegar það að forsrh. fengi sérstakt vald eða stöðu umfram aðra menn, jafnvel þó að hann gæti auðvitað verið utanþingsmaður, og í öðru lagi það að almennt skuli vera gerð tilraun til að takmarka málfrelsi þingmanna með þessu ákvæði. Og ég mæltist til þess í greinargerðinni að þingmenn tjáðu sig um málið. Það var síðan gert, bæði í nafnakallinu og í umræðum um þingsköp. Ég hygg að þá hafi talað fulltrúar allra flokka og fleiri en einn frá mörgum. Ég skil niðurstöðu þeirrar umræðu þannig að samstaða sé um það hér í þessari deild að ekki eigi að takmarka málfrelsi þingmanna með þeim hætti sem þingskapatillagan í drögunum gerir ráð fyrir, hvorki almennt né heldur og enn síður með þeim hætti að forsrh., hver sem hann er, fái sérstaka stöðu til þess að gera tillögur um takmörkun á málfrelsi þingmanna.
    Ég vil nefna þetta hér, virðulegi forseti, við 3. umr. vegna þess að ég tel þetta mikilvægt mál. Það má ekkert það gera, hvað sem mönnum svo finnst um langar ræður út af fyrir sig, sem skerðir hinn lýðræðislega og þingræðislega rétt þingmanna. Þess vegna vildi ég undirstrika þetta mál núna og leyfa mér að draga þá ályktun að um þau sjónarmið sem ég setti þarna fram hafi komið fram mjög víðtæk samstaða.