Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson) :
Virðulegi forseti. Þær breytingar sem hæstv. menntmrh. impraði á og voru til umræðu við 2. umr. þessa máls komu ekki beint til umræðu í nefndinni, ekki nema manna á meðal. Hins vegar tel ég mjög eðlilegt að á næsta þingi þegar rætt verður um þingsköp Alþingis verði skipuð sérstök nefnd til að fara ofan í þessa þætti. Það sem fram kemur í fylgiskjali með þessari stjórnarskrárbreytingu er að mínu viti sérstakt atriði út af fyrir sig og kemur ekki þessari stjórnarskrárbreytingu við.
Ég vænti þess, og á þeim forsendum taldi ég ekki rétt að fara mjög ítarlega ofan í einstök atriði í greinargerð eða fylgiskjölum, að sú breyting sem er verið að leggja hér til um eina málstofu verði ekki til þess að hefta frelsi þingmanna til að tjá sig um þau mál sem verða borin upp á Alþingi. Ég held að það mundi verða mjög mikið skref aftur á bak. Ég held hins vegar að sú breyting sem er verið að leggja til sé til þess að skipuleggja störf Alþingis betur en hefur verið. Á þeirri forsendu hef ég verið þeirrar skoðunar að það ætti að samþykkja þessa stjórnarskrárbreytingu. Hins vegar er ég mjög áfram um það að viðhalda þeim hefðum og því frelsi sem hver þingmaður á að hafa til þess að tjá sig og til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Þá tilteknu reglu sem hæstv. menntmrh. minntist hér á, hvort það eigi að vera í höndum forsrh. að ákveða hvað umræða megi standa lengi og hve lengi þingmenn mega tala, tel ég mjög einkennilega, ég verð að viðurkenna það. Að sjálfsögðu á það að vera forseta þingsins og þingheims að ákveða slíkt en ekki ríkisstjórnarinnar sem slíkrar undir forustu forsrh. Þetta vildi ég taka fram svo að það sé alveg ljóst hvað var rætt í nefndinni.
Aðalástæðan fyrir því að nefndin var kölluð saman á milli 2. og 3. umr. var hins vegar þessi breyting sem ég mælti fyrir áðan, að koma ákvæðinu um umboðsstarfalausa dómendur í gegn vegna þeirrar miklu réttaróvissu sem það mundi ella skapa.