Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
Virðulegi forseti. Það mál sem hér er á dagskrá, og er nú furðu lítið rætt satt að segja, er eitt af stærstu málum þingsins. Það er verið að breyta stjórnarskránni. Stjórnarskráin er kjarninn í okkar stjórnskipun og þingið er kjarninn í okkar þingræðis- og lýðræðisskipun. Ég geri út af fyrir sig ráð fyrir því að flestir þingmenn séu með svo uppgerðan hug að því er varðar eina málstofu í stað tveggja að menn telji ekki mikla þörf á að færa fyrir því ítarleg rök af hverju þeir hafa þá afstöðu sem liggur fyrir, sem yfirgnæfandi meiri hluti Alþingis, að mér heyrist, hefur í þessu máli.
Fyrir mér eru rökin fyrst og fremst þau að ég tel að með einni málstofu sé hægt að koma við skipulegri verkaskiptingu þingmanna en nú er um að ræða. Nefndir starfi í samfellu og t.d. verði auðveldara að tryggja að stjórnarfrv., svo ég nefni dæmi eða önnur lagafrv. eftir atvikum, fái eðlilega meðferð. Ég segi þetta af reynslu margra ára í mörgum ráðuneytum þar sem það hefur gerst aftur og aftur að menn leggja inn frv. snemma þings. Þau hafa, þegar mjög er liðið á þingið, fengið afgreiðslu í fyrri deild, síðan hefur síðari deildin haft mjög knappan tíma til þess að ljúka málinu og það er slæmt. Þess vegna held ég að það sé unnt með einni málstofu að stuðla að betri málefnalegri vinnu en kostur virðist hafa verið í núverandi kerfi og verði til þess að þingmenn geti vandað betur vinnubrögð sín, menn skipti verkum í þingflokkunum betur en nú er gert. Sömu menn þurfi ekki að vera í fjöldamörgum nefndum eins og þetta er í dag og þannig verði meiri alvara og festa og dýpt í nefndastörfunum sjálfum.
Það er út af fyrir sig ekkert hik á mér í þeim efnum að það sé eðlilegt miðað við reynsluna að Alþingi verði ein málstofa. Það liggur heldur ekkert fyrir um að það sé nein trygging fyrir endilega betri vinnubrögðum að þingið sé í tveimur málstofum. Það kemur auðvitað oft fyrir að síðari deild sér eitt og annað sem þeirri fyrri sást yfir, en það er engin trygging fyrir því eins og þetta hefur verið unnið á undanförnum árum. Ég þekki til þingsins um alllangt árabil og ég tel að vinnubrögðin í þessum efnum hafi í raun og veru farið jafnt og þétt versnandi. Ég tel að þær tilraunir sem hafa verið gerðar, t.d. með breytingu á þingsköpum til að laga ýmsa hluti, hafi í raun og veru ekki skilað þeim árangri sem skyldi en í þeim fólust m.a. tilraunir til þess að takmarka málfrelsi manna þannig að það hefur nú þegar verið gert reyndar með síðustu breytingum sem gerðar voru á gildandi þingsköpum svo að það er í sjálfu sér ekkert nýtt þó að reynt sé að setja reglur um þá hluti sem eru allt annað en það að opna fyrir undantekningarákvarðanir af einhverju tagi sem loka fyrir eðlilega umræðu um málið. Þess vegna er það rangt sem hér var haldið fram að ein málstofa þýði sjálfkrafa lakari vinnubrögð. Það þýðir það ekki sjálfkrafa. Það er ekkert sem segir að hún þurfi endilega að þýða verri vinnubrögð en tvær málstofur. Og það er ekkert sem
segir að það sé trygging fyrir betri vinnubrögðum að hafa Alþingi í tveimur málstofum.
Það sem liggur fyrir, verði þessi stjórnarskrárbreyting samþykkt, er að við þurfum að setja okkur nýjar starfsreglur um þingið. Það eru þingskapalög. Drög að þeim hafa verið samin. Ég hef gagnrýnt þar eitt atriði alveg sérstaklega og áskil mér rétt til þess að taka það mál upp þegar þar að kemur, ef ég fæ til þess möguleika.
Ég held að það sé hins vegar mjög mikilvægt að um leið og stjórnarskrárbreytingin yrði afgreidd þá hafi menn látið það koma fram að þeir telji að það geti verið hættulegt, ef ekki er gripið til sérstakra ráðstafana, að opna fyrir það að menn geti takmarkað málfrelsi þingmanna verulega, eins og er gert ráð fyrir í drögum að þingsköpum og þeim drögum hef ég hér verið að mótmæla.
Ég tel ekki að það sé verulegur héraðsbrestur uppi, þaðan af síður þjóðartjón, þó að Alþingi verði ein málstofa. Ég hef engin rök heyrt sem sannfæra mig um það. Ég mundi að sjálfsögðu taka þeim ef þau sannfærðu mig um það vegna þess að mér er þetta mál það kært og ég tel að hér sé komið að svo þýðingarmiklu grundvallaratriði að öllum þingmönnum sé skylt að hlýða á hvað eina sem fært kann að vera fram, með eða á móti eftir atvikum.
Þetta vil ég segja, virðulegi forseti, í tilefni af þeim orðum sem voru flutt áðan og ítreka að að sjálfsögðu getur það farið saman, annars vegar að segja ein málstofa og hins vegar að segja lýðræðisleg þingsköp. Að sjálfsögðu. Það segir sig algjörlega sjálft. Menn hafa auðvitað glímt við það í öðrum þingum og hefur tekist víða ágætlega. Menn hafa glímt við það hér í þessu þingi, í þeirri einu málstofu sem hér er, sameinað þing, og hefur um margt tekist ágætlega. Það er því ekkert sem segir að það sé algjörlega fráleitt að sameina þingið í eina málstofu. Þess vegna er það sem ég held mig fast við þá afstöðu sem ég hef haft, ég styð þetta frv. en segi um leið: Útfærslan er úrslitaatriði.
Ég bendi hins vegar á að hægt er að breyta gildandi þingskapalögum miðað við tveggja deilda kerfi einnig í verri átt, þannig að núverandi kerfi tryggir okkur ekkert í rauninni frekar þegar upp er staðið. Satt að segja held ég að núverandi kerfi hafi sýnt að miðað við aðrar nútímaaðstæður sé það slæmt, það sé gallað og leiði á köflum til vinnubragða sem eru þinginu tæplega sæmandi. Þá er ég sérstaklega að hugsa um nefndirnar og þá vinnu sem lögð er á þingmenn, óheyrilega vinnu í mörgum nefndum á einn og sama manninn oft á tíðum, sem er auðvitað algjörlega fráleitt alvöruleysi þegar upp er staðið. Þetta vildi ég láta koma fram, herra forseti, því ég tel að mér sé skylt a.m.k. að halda mínum sjónarmiðum skýrt til haga í jafnmikilvægu máli og þessu.