Frv. um fæðingarorlofsgreiðslur
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Eyjólfur Konráð Jónsson :
    Herra forseti. Það er sjálfgefið að taka undir ummæli þeirra hv. þm. sem óska eftir því að málið hafi eðlilegan gang. En ég komst ekki hjá því að skilja hæstv. ráðherra þannig að hann hefði haft einhver afskipti af því hvort nefndin starfaði. Ef það er misskilningur að ráðherra hafi látið að því liggja að hann persónulega væri, vegna einhverra málaferla, óánægður með að þetta mál væri á ferðinni, þá er það út af fyrir sig alvarlegt ef hann hefur gert tilraun til þess að stöðva málið eða koma í veg fyrir að það hefði eðlilegan framgang. Ef þetta er misskilningur, þá bið ég afsökunar á því, en ég gat ekki skilið ráðherrann öðruvísi en svo að hann væri að blanda þessu máli saman við eitthvert annað mál sem væri fyrir dómstólum ( Gripið fram í: Þetta er sama málið.) sama málið, þess vegna skildi ég hann þannig að hann væri fremur að andmæla því að málið hefði eðlilegan framgang. En ég sé að þeir nefndarmenn sem hér hafa talað ætla að láta málið hafa eðlilegan framgang og við hljótum auðvitað að krefjast þess í stjórnarandstöðu sem erum hér daginn út og daginn inn að greiða fyrir framgangi mála að þetta mál fái eðlilegan framgang og komi hér inn áður en langur tími líður.