Eyjólfur Konráð Jónsson :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þá yfirlýsingu sem hann hefur gefið. Ég skil hana svo að hann muni ekki setja fótinn fyrir framgang málsins og það er sjálfsagt að svo sé. Þess vegna treysti ég því að málið komi til deildarinnar innan skamms tíma.