Skaðsemisábyrgð
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason) :
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. til laga um skaðsemisábyrgð, sem lýtur að því að samræma reglur hér reglum í Vestur-Evrópu.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt.
    Undir þetta skrifa allir nefndarmenn, einn með fyrirvara, Guðmundur Ágústsson.