Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
    Herra forseti. Í Nd. varð nokkur umræða um heimild til lántöku vegna þilplötuverksmiðju í Þorlákshöfn. Þá upplýsti ég að um þetta mál var lítillega rætt í ríkisstjórninni fyrr í vikunni og að af hálfu ríkisstjórnarinnar mun að sjálfsögðu verða tryggt að fjármagn fáist til hafnargerðar ef hið erlenda fyrirtæki kýs að reisa þilplötuverksmiðju í Þorlákshöfn, enda hefur mér skilist að kostnaður við slíka hafnargerð yrði af stærðargráðunni kringum 135 millj. kr. Hitt er svo staðreynd að eftir að ákveðið er að reisa þilplötuverksmiðju, hvar sem hún er reist, þá mun það taka tvö ár að reisa verksmiðjuna og því algjör óþarfi að setja það inn á lánsfjárlagaheimild nú.