Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Hæstv. forseti. Það er auðvitað ljóst að náist samningar um fyrirtæki þetta verða gerðar ráðstafanir til þess að tryggja það að fyrirtækið rísi. Með hliðsjón af því og þeirri yfirlýsingu sem forsrh. hefur gefið er málið í raun og veru skýrt af hálfu ríkisstjórnarinnar þar sem miðað er við Þorlákshöfn, að því er varðar þessar framkvæmdir. Ég vil hins vegar nota tækifærið til þess að lýsa því yfir að mér finnst það sérkennileg vinnubrögð að setja inn tillögu af þessu tagi á þessu stigi málsins sem er bersýnilega ætluð til þess eins að negla þingmenn kjördæmisins og valda þeim erfiðleikum sem eiga sæti í deildinni. Ég segi nei, herra forseti.