Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Geir H. Haarde :
    Virðulegur forseti. Ég vil bara láta það koma hér fram af minni hálfu að ég tel að sú brtt. sem hæstv. ráðherra hefur flutt sé til bóta. Ég styð hana þess vegna og fagna því að ráðherrann hefur fallist á þau meginsjónarmið sem lágu til grundvallar þeirri tillögu frá mér og fleirum sem hér var samþykkt í gær. Sá möguleiki sem þar var gert ráð fyrir í lögunum verður fyrir hendi eftir sem áður þrátt fyrir þessa breytingu.