Almannatryggingar
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. heilbr.- og trn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Virðulegur forseti. Ég flyt hér nál. frá heilbr. - og trn. Þetta var tiltölulega einfalt mál sem nefndin ákvarðaði í snarheitum. Guðmundur G. Þórarinsson var fjarverandi þegar málið var afgreitt. Við leggjum öll til að málið verði samþykkt óbreytt eins og það kom úr efri deild og undir þetta skrifa allir viðstaddir nefndarmenn: Anna Ólafsdóttir Björnsson, Geir Gunnarsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Geir H. Haarde, Ragnhildur Helgadóttir og Jón Sæmundur Sigurjónsson.