Stefán Valgeirsson :
Herra forseti. Á þskj. 525 lagði ég fram brtt. sem var svohljóðandi:
,,Við frv. bætist ný grein er verði 35. gr., svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði í 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er fjmrh. heimilt að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt af gjöfum til björgunarsveita, svo og til mannúðar- og líknarstarfsemi.``
Hv. fjh.- og viðskn. hefur tekið þessa tillögu upp í 10. lið og að sjálfsögðu fell ég því frá þessari brtt.
Ég hefði viljað að hæstv. landbrh. væri hér í sal. ( Gripið fram í: Hann er hér.) Það er dálítið sérstakt með afgreiðslu þessara mála sem liggja hér fyrir og hæstv. ríkisstjórn og fjh.- og viðskn. hefur gengið frá að þar er í sjálfu sér orðið við ýmsum beiðnum frá þeim sem hafa orðið fyrir einhvers konar óhappi eða áföllum og ég er ekki að lasta það þó að þeir sem t.d. urðu fyrir skaða í óveðrinu fái einhverjar bætur, en sumir telja nú að þarna sé allríflega að staðið. Ég er heldur ekki að átelja það að loðnuverksmiðjur og þeir staðir sem hafa byggt sína atvinnu og afkomu að verulegu leyti á loðnuvinnslu fái einhverja aðstoð, ég er ekki að lasta það. En það hlýtur að koma ýmsum dálítið einkennilega fyrir sjónir að þrátt fyrir þær umræður sem urðu hér utan dagskrár um það hvernig komið er fyrir loðdýraræktinni, þá hefur þeim lið alveg verið gleymt í þessum tillögum. Þó er ástandið þannig að sumt af því fólki sem í þessari atvinnugrein starfar hefur ekki einu sinni fyrir mat og hefur verið að slátra gemlingum á góunni vegna sinna erfiðu aðstæðna.
Ég tel það alveg merkilegt að hv. þm., sérstaklega stjórnarþingmenn og ríkisstjórn, skuli ekki hafa gert eitthvað í málum loðdýrabænda, í sambandi við lögin um ríkisábyrgð á lánum, að það skuli ekki hafa verið tekið í leiðinni, vegna þess að þetta gæti orðið síðasti möguleikinn sem þessi ríkisstjórn hefur til að standa við það sem ýmsir stjórnmálamenn hvísluðu að bændunum á sínum tíma þegar lögin voru hér til umfjöllunar, þ.e. að það yrði séð til þess að ef illa tækist til með þessa atvinnugrein mundu þeir ekki þurfa að borga þessi lán. En síðan eru lögin þannig, og reglugerð sem hefur víst verið sett við þau, að þeir verða að borga þessi lán og var farið að innheimta þau og sumir hafa reynt að greiða þau þó að þeir hafi í sjálfu sér ekki haft neina möguleika til þess.
Það er nú svo komið að sumar af þessum fjölskyldum eru búnar að flýja sinn stað, sumir eru jafnvel lagstir í rúmið, a.m.k. einn, og það væri hægt að hafa hér langt mál um það hvernig komið er fyrir þessu fólki. Á sínum tíma voru margir af þessum mönnum hvattir af stjórnvöldum, af bændasamtökunum, af ráðunautunum til að selja sinn kvóta og fara í þessa framleiðslugrein. Af þessari ástæðu er siðferðileg skylda stjórnvalda að mínu mati langtum meiri en í sambandi við aflabrest eða óveður, óveður sem er þó hægt að tryggja sig fyrir. Hins vegar má enginn taka orð mín þannig að ég hafi á móti því. Ég er að tala
um það að það sem hefði átt að ganga fyrir öðru er skilið eftir.
Nú mundi ég líka vilja spyrja hæstv. landbrh. að því hvort hann hafi haft tíma til að skoða rekstrarlán þessara bænda þar sem mér hefur verið sagt það og ég hef komið því til hans að þau hafi verið lækkuð verulega frá því í fyrra þrátt fyrir það að verðið á framleiðslunni, á skinnunum hafi þokast svolítið upp.
Ég vil að þetta komi hér fram. Ég ætlaðist til að tekið yrði á þessu máli með öðrum hætti en nú virðist blasa við og harma það hvernig komið er.
Það er dálítið furðulegt að lesa tillögu þeirra hv. þm. Páls Péturssonar, Ólafs Þ. Þórðarsonar og Jóns Sæmundar Sigurjónssonar í sambandi við álbræðslumálið. Þeir leggja til að áfram verði haldið við að undirbúa virkjanir þó að litlar líkur séu fyrir því að samningar náist. Ég var að vonast til að þeir væru við þessa umræðu, ekki síst formaður fjh.- og viðskn. deildarinnar, hv. þm. Páll Pétursson. Það skiptir kannski ekki máli og það tekur því e.t.v. ekki að ræða þessi mál. En ég held að eftir umræðurnar t.d. í sambandi við loðdýrin hér um daginn í sameinuðu þingi hafi þeir vænst þess, miðað við undirtektirnar, að það yrði tekið á þessu máli.
Ég vil spyrja hæstv. fjmrh. og hæstv. landbrh. hvort þess sé ekki að vænta að tekið verði á skuldamálum loðdýrabænda. Það er nú sjálfsagt stuttur tími og möguleiki til þess, gæti a.m.k. verið það fyrir þessa ráðherra. Því það er nauðsynlegt að þetta fólk viti þá að það sé ekkert um að ræða annað en að gefast upp þótt margt bendi til þess að skinnaverð sé að hækka. En þegar fyrirgreiðsla er engin, skilningur í orði en ekki í verki, samstaða ekki um neitt, þá hlýtur þessi atvinnugrein að leggjast af. Það er engin von til þess að þessir bændur geti staðið undir skuldum sínum þó verðið hækki. Það halda margir að það sé bjartara fram undan með þessa atvinnugrein. Það er mikil fjárfesting þarna sem verður ekki til neins ef allir hætta. Þarna er komin verkkunnátta sem gæti reynst þjóðinni einhvers virði ef breyting yrði, sem allar horfur virðast vera á eftir því sem kunnáttumenn í þessari grein segja mér.