Hjörleifur Guttormsson :
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að viðstaddur umræðuna verði formaður fjh. - og viðskn., hv. 1. þm. Norðurl. v., sem ætti nú ekki að þurfa að taka sérstaklega fram. ( FrS: En iðnrh.?) Og ekki sakaði það heldur þótt hæstv. ráðherra legði hér við hlustir sem væri nú ekki óeðlilegt þegar þetta mál er hér rætt, frv. til laga um lánsfjárlög og þar sem ég ætla fyrst og fremst að ræða þann þátt þessa máls sem lýtur að málasviði hæstv. iðnrh. En ég er ekki með sérstaka kröfu um það að hann verði sóttur út í bæ ef hann er ekki í þinghúsi því að ég á ýmislegt vantalað við formann fjh. - og viðskn. sem flytur hér tillögur í þessu máli. Það er við hann sem ég þarf að eiga sérstakan orðastað. ( Forseti: Það er verið að ná í hv. 1. þm. Norðurl. v.) Já, ég þakka fyrir. Ég vil einnig inna eftir því hvort von er á að hæstv. iðnrh. verði hér við umræðuna. ( Forseti: Forseti mun óska eftir nærveru hæstv. iðnrh.) Já, ég þakka, virðulegur forseti.
Við erum hér að ræða frv. til lánsfjárlaga og það væri ástæða til þess að fjalla hér um marga þætti þessa máls, en ég ætla tímans vegna að takmarka mig eins og ég gat um fyrst og fremst við það sem snýr að öflun heimilda vegna ráðgerðrar byggingar álbræðslu á Keilisnesi í Vatnsleysustrandarhreppi, enda er þar út af fyrir sig af ærnu að taka. Ég vil þó geta þess, virðulegur forseti, að eitt atriði sem tengist lánsfjárlagafrv. snertir spurninguna um heimildir fyrir Ríkisútvarpið til þess að njóta lagaákvæða um afnotagjöld af viðtækjum og fleira sem er lögmarkað og hér liggur fyrir brtt. frá hv. þm. Kvennalistans um það efni, að þær heimildir skuli ekki takmarkaðar með ,,þrátt fyrir`` - ákvæðum. Ég tel að það sé hið mesta óráð að halda áfram þeirri stefnu að skerða þessar heimildir vegna Ríkisútvarpsins og minni á það sem gerðist í fárviðri á liðnum vetri og minni á það ástand sem langbylgjusendingar Ríkisútvarpsins búa við, það óöryggi sem því fylgir. Ég treysti mér ekki til að greiða þeirri tillögu atkvæði sem fyrir liggur frá meiri hl. fjh. - og viðskn. um að þessi skerðing gildi áfram og mun því greiða atkvæði um að 25. gr. í frv. falli niður eins og gerð er tillaga um af hv. þm. Kvennalista.
Ég ætla þá að snúa mér að þeirri brtt. sem fyrir liggur á þskj. 1006 við frv. til lánsfjárlaga, en þar er lagt til í fyrsta lagi að við 3. gr. frv. bætist ný málsgrein sem orðist eins og þar segir og felur í sér að heimilað verði að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar að taka að láni á yfirstandandi ári allt að 800 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt til undirbúnings virkjana eins og nauðsynlegt er og síðan segir í lok þessa 1. tölul.: ,,Ákvörðun um þennan undirbúning og að nýta heimildir samkvæmt þessari málsgrein skal tekin í ljósi framvindu samninga um álver á Keilisnesi.`` Þetta er fyrri þáttur málsins og ætla ég að fjalla um hann nokkuð frekar. En nú er hv. 1. þm. Norðurl. v. genginn á dyr þannig að lítið gagnaðist þótt hann birtist hér augnablik í þingsal.
Vildi virðulegur forseti gera hv. þm. aðvart um að ég óski eftir nærveru hans hér?
Virðulegur forseti. Ég vil minna á í þessu samhengi, þegar tillaga liggur hér fyrir um lánsheimild upp á 800 millj. kr. vegna framkvæmda í þágu álbræðslu sem ekkert liggur fyrir um að samið verði um, þá afgreiðslu sem fór fram hér á hv. Alþingi sl. vor í lok síðasta þings þegar ríkisstjórninni var heimilað með sama hætti og eftir sömu formúlu að taka að láni 300 millj. kr. til undirbúningsframkvæmda við virkjanir í þágu álbræðslu. Um það mál og þá tillögu var ítarlega fjallað þá í iðnn. þingsins og dregin fram ýmis gögn um málið. Ég beitti mér gegn þessari lánsfjárheimild sem ríkisstjórnin þó notaði eftir þessari formúlu, að mjatla út þessu fjármagni í ljósi þess hvernig samningaviðræður þróuðust. Það varð sem sagt ekki nein bremsa þó svo að í rauninni lægi ekkert haldbært fyrir um líklega samninga um álbræðsluna. Í frv. hæstv. iðnrh. um breytingu á lögum um raforkuver sl. vor sagði í skýringu um ákvæði til bráðabirgða sem varðaði þessar 300 millj.: ,,Ákvarðanir um þessar framkvæmdir og það að nýta þessar heimildir verða teknar í einstökum atriðum eftir því sem samningum um álverið vindur fram.``
Ég spurði hæstv. iðnrh. að því hér fyrr á þinginu með hvaða hætti þessar heimildir hefðu verið notaðar. Og það liggur fyrir, virðulegur forseti, svar frá hæstv. ráðherra þar sem fram kemur að ekki einungis hafi þessar heimildir verið notaðar að fullu heldur hafi verið bætt um betur og varið í þessu skyni gegn lögum, gegn samþykktum lögum, 367 millj. kr. --- Hvar er hv. formaður fjh. - og viðskn., talsmaður meiri hl. nefndarinnar? Er hans ekki að vænta, virðulegur forseti? Til hvers er verið að biðja um nærveru manna ef þeir ekki birtast hér nema í mýflugumynd?
Hv. þm. Páll Pétursson. Ég var að rekja það hvernig farið hefði verið með þá heimild sem veitt var með lögum um raforkuver sem samþykkt voru sl. haust þar sem er að finna nákvæmlega sömu ákvæði og nú á að setja inn í lánsfjárheimild upp á 800 millj. kr., þ.e. að þessar heimildir verði notaðar í ljósi framvindu samningaviðræðna eins og hér segir: ,,Ákvörðun um þennan undirbúning og að nýta heimildir samkvæmt þessari málsgrein skal tekin í ljósi framvindu samninga um álver á Keilisnesi.`` Þetta er nánast sama orðalagið og var að finna í frv. hæstv. ráðherra sl. vor. Þá gerðist það að ekki aðeins voru þessar heimildir fullnýttar á sl. ári heldur voru brotin lög með því að verja 67 millj. kr. umfram það sem ríkisstjórnin hafði aflað sér heimilda fyrir. Og ég spyr hv. 1. þm. Norðurl. v.: Hvaða rök finnur hann fyrir því að vera nú að endurtaka þetta sullumbull, að vera nú að endurtaka að veita slíkar heimildir þegar í rauninni ekkert frekar liggur fyrir heldur en fyrir lá fyrir bráðum ári síðan um það að samið verði um þetta fyrirtæki? Það sem hræðir eru sporin, hvernig þessi heimild var notuð á sl. ári. Við lesum í framsöguræðu hv. 1. þm. Norðurl. v. um þetta atriði og það hefur einnig gildi í þessu sambandi og sýnir hvernig hrapað er að þessu máli, þar sem hv. þm. segir í ræðu sinni:
,,Ákvörðun um þennan undirbúning og að nýta heimildir skv. þessari málsgrein skal tekin í ljósi framvindu samninga um álver á Keilisnesi. Að sjálfsögðu verður ekki farið út í fjárfrekar framkvæmdir til undirbúnings þessa máls fyrr en skriður er á ný kominn á samninga um álver á Keilisnesi. En eins og menn vita eru þeir samningar í biðstöðu eins og stendur. En það er von okkar að úr rætist og þá þarf að hafa þessa heimild`` --- og nú er hæstv. ráðherra að gefa hv. 1. þm. Norðurl. v. línuna, hvernig hann eigi nú að bregðast við þessu og skýra þetta, og það er þeim auðvitað fullkomlega heimilt en ég bið hv. 1. þm. Norðurl. v. að leggja við hlustir. ( PP: Ég hlusta.) --- ,,og þá þarf að hafa þessa heimild ef árið á ekki að tapast, eða sumarið á ekki að tapast sem framkvæmdatími.``
Ég bið þingdeildina að veita athygli þessu orðalagi. Það er sem sagt sett undir þennan leka með þessu móti, segir hv. þm.
Hér blasir við sá ásetningur hæstv. iðnrh., því að það er hann sem er að smeygja þessu beisli upp á hv. 1. þm. Norðurl. v., hér blasir við sá ásetningur hans að knýja Landsvirkjun til þess að fara að ráðast í frekari framkvæmdir vegna virkjana í þágu álbræðslu sem enginn veit hvort nokkurn tíma verður reist strax í maímánuði nk., því að hæstv. ráðherra hefur gefið það út margsinnis að hann telji að þá verði fulllokið samningum þótt ekki verði það um fjármögnunarþáttinn því það geti tekið 6 -- 10 mánuði. Og þá á að fara út í óráðsíuna, þá á að setja þumalskrúfurnar á Landsvirkjun til þess að hæstv. ráðherra haldi hér höfði gagnvart þjóðinni. Hann verður þá að líkindum enn þá í ráðherrastóli, eitthvað fram eftir maímánuði a.m.k. skyldi maður ætla, nema þeir félagar Davíð Oddsson og hv. 1. þm. Suðurl. Þorsteinn Pálsson verði búnir að ganga frá stjórninni með honum, viðreisnarstjórninni sem er í
burðarliðnum hér í sölum Alþingis þessar vikurnar, og þá ætlar hæstv. ráðherra að þrýsta á um það að þessar heimildir verði notaðar. Og hv. 1. þm. Norðurl. v. tekur þátt í þessum leik með honum. Hvað rekur hv. 1. þm. Norðurl. v. út í þetta fen, út í þessa ábyrgðarlausu tillögu sem hér liggur fyrir sem hann stendur að ásamt öðrum þingmanni Framsfl. og einum þingmanni Alþfl. úr fjh. - og viðskn.? Og hv. 1. þm. Norðurl. v. talar hér um að það þurfi að útvega þessa bráðnauðsynlegu heimild sem lið í þessum bandormi sem hér er um að ræða, þessa bráðnauðsynlegu heimild.
Þá skulum við koma að hv. 1. þm. Norðurl. v. í samhenginu ekki formaður fjh. - og viðskn. Nd. Alþingis heldur stjórnarmanni í Landsvirkjun. Ég held að það sé rétt að líta aðeins á málið í því samhengi því að Landsvirkjun hefur fjallað um þetta mál og stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Landsvirkjunar hafa bréfað til hæstv. iðnrh. 21. febr. sl., þar sem þeir eru að svara ósk hæstv. iðnrh. frá 19. febr. þar sem hann óskaði eftir mati fyrirtækisins á stöðu samnings um orkusölu til nýs álvers á Keilisnesi og afstöðu til þess að aflað verði á þessu þingi heimildar til áframhaldandi undirbúnings virkjana á árinu 1991, þannig að sjá
megi væntanlegu álveri á Keilisnesi fyrir raforku um áramótin 1994 -- 1995, en það er formúla hæstv. ráðherra sem hann gefur stjórn Landsvirkjunar að hann ætli sér að tryggja að það sé hægt, þannig að það verði ekki nema það sem hann kallar fimm mánaða seinkun á því að álbræðslan taki til starfa að fullu. Það er það sem hann er að reyna að telja kjósendum á Reykjanesi trú um að hann hafi hér mál á hendi þannig að það verði ekki nema um fimm mánaða seinkun og þetta þarf að vera svona nákvæmt til að selja þessa staðhæfingu, þá skuli það vera fimm mánuðir, á meðan málið er gersamlega úti í vindinum gagnvart samningsaðilunum sem eiga að reiða fram fjármagnið, 60 milljarða.
Um þetta segir stjórnarformaður Landsvirkjunar fyrir hönd fyrirtækisins 21. febr., varðandi verkáætlun vegna undirbúnings virkjana sem nauðsynlegur er til að sjá nýju álveri fyrir raforku veturinn 1994 -- 1995, orðrétt:
,,Sú verkáætlun sem Landsvirkjun hefur unnið eftir undanfarið vegna virkjana í þágu nýs álvers gerir ráð fyrir að unnt sé að gera verksamninga í lok maí nk.
Nú bendir hins vegar allt til þess að þessum tímamörkum verði ekki náð, þar sem Landsvirkjun treystir sér ekki til að fara í framkvæmdir fyrr en fyrirvaralaus rafmagnssamningur við Atlantsál hf. liggur fyrir.``
Þetta er bréf Landsvirkjunar byggt á samþykkt stjórnar fyrirtækisins eftir umræðu í stjórn fyrirtækisins. Ég ræddi í gær við tvo stjórnarmenn um skilning á þessari samþykkt sem hér er bréfuð og þeirra umsögn var á þá leið að þetta varðaði spurninguna um þær lántökuheimildir sem hér er verið að óska eftir, þær framkvæmdir sem hér ræðir um séu þær framkvæmdir sem á að verja til þessum 800 millj. Kaleikur sem stjórn Landsvirkjunar hefur vísað frá nema fyrirvaralaus rafmagnssamningur liggi fyrir við Atlantsál hf. Og hvenær liggur fyrirvaralaus samningur fyrir? Ja, það gerist vart fyrr en stjórn Landsvirkjunar a.m.k. hefur gert hann og bókað hann og í rauninni að Alþingi hefur fjallað um málið. Hér er því haldið á máli með dæmalausum hætti og maður spyr sig: Hvað rekur þingmenn Framsfl. til þess að gangast undir það jarðarmen sem hæstv. iðnrh. er að reisa hér og skrifa upp á þessa beiðni um þessa spilapeninga hæstv. ráðherra? Og ætla sér að endurtaka leikinn frá síðasta ári þar sem farið var meira að segja fram úr veittum heimildum svo um munaði. Hvaða áhrif halda menn að svona ráðslag hafi á samningsstöðu Landsvirkjunar gangvart Atlantsál hf.? Að auglýsa það með heimildum af þessum toga að Íslendingum sé svo brátt í brók að gera við þá samning um þetta að þeir reiði hér fram hundruð milljóna kr. á hundruð milljóna ofan til þess að flýta sér að virkja og binda sig framkvæmdalega séð út á samning sem ekkert liggur fyrir um?
Nei, það eru tíðindi að slíkur tillöguflutningur liggur hér fyrir af hálfu þeirra framsóknarmanna og Alþfl., að þeir skuli ganga þar í bandalag og hneykslast á því að hér liggur fyrir tillaga frá Ragnari Arnalds sem fulltrúa Alþb. í fjh. - og viðskn. um að það skilyrði skuli uppfyllt sem Landsvirkjun er samdóma um að beri að setja í sambandi við þessi mál gagnvart Atlantsál. Hv. þm. Páll Pétursson sér sérstaka ástæðu til þess að hnýta í hv. 4. þm. Norðurl. v. fyrir það að bera slíka tillögu fram og vera þeim ekki samferða í tillögugerð hér til þingdeildarinnar.
Það mætti fjölmargt fleira segja um þetta. Ég vil aðeins rifja upp í þessu samhengi fyrir stjórnarformanninn Pál Pétursson úr stjórn Landsvirkjunar umsögn sem barst iðnn. Nd. vegna frv. í fyrravor þar sem var verið að afla heimilda um 300 milljónirnar. Þar segir Landsvirkjun:
,,Um spurningu af hálfu nefndarinnar: Er nauðsynlegt að hraða undirbúningi, áhrif á samningsstöðu.
Til að tryggja að Landsvirkjun geti séð 200 þús. tonna álverksmiðju fyrir raforku 1994 miðað við núverandi ráðagerðir er nauðsynlegt að halda áfram undirbúningsvinnu í þágu hlutaðeigandi virkjana. Lágmarksfjárfesting í ár í þessu skyni er um 300 millj. kr., einkum vinna við hönnun, rannsóknir útboðsgagna, gerð og ýmsa aðstöðusköpun eins og fram kemur hér að framan. Til að draga úr hættu á að fjárfest verði meira en þörf krefur verður að leitast við að endurskoða fjárfestingaráformin nægilega oft á árinu til að draga megi í land með fjárfestingar eftir því sem samningaviðræður kunna að gefa tilefni til. Þessi undirbúningur er tiltölulega lítill miðað við þann kostnað sem þegar hefur verið lagt í vegna rannsókna og undirbúnings í þágu hlutaðeigandi virkjanakosta á undanförnum árum. Miðað við stöðu álmálsins í dag [og það er í byrjun maímánaðar 1990 sem þetta er skrifað] er umrædd fjárfesting í ár forsenda fyrir því að kostnaður af svipuðu tagi og hingað til skili arði fyrr en seinna. Hér er því ekki um að ræða að fjárfestingin í ár veiki samningsaðstöðu okkar. Þvert á móti styrkir hún okkur í þeim möguleika að nýta fjárfestingar á fyrri árum með raforkusölu á viðeigandi verði.``
Þetta er svar frá framkvæmdastjórn Landsvirkjunar við fyrirspurn frá iðnn.
En það er beðið um fleira heldur en 800 millj. vegna virkjunarframkvæmda. Það er í öðru lagi á sama þskj. lagt til að inn verði tekin heimild þar sem fjmrh. sé heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð eða taka lán að hluta eða öllu leyti í stað ríkisábyrgðar og endurlána Vatnsleysustrandarhreppi til að fjármagna kaup á jörðinni Flekkuvík ásamt mannvirkjum, og lönd úr jörðunum Stóru - og Minni - Vatnsleysu, ásamt mannvirkjum. Endurgreiðsla Vatnsleysustrandarhrepps á veittum lánum samkvæmt þessari grein skal háð því að af byggingu og rekstri álvers verði en að öðrum kosti skulu hinar keyptu eignir falla til ríkissjóðs.
Hér hygg ég vera ekki beinar tölur inni, en hæstv. iðnrh. gerði um það tillögu til nefndarinnar að þarna væri um að ræða allt að 300 millj. kr. og það er svona leiðbeinandi upphæð eftir að hæstv. ráðherra hefur sett það fram, 300 millj. kr. til kaupa á þessum kotum á Keilisnesi undir hugsanlega álbræðslu, ella falli hinar keyptu eignir til ríkissjóðs. Og þarna segir enn frekar:
,,Náist ekki samningar við eigendur landa eða mannvirkja getur fjmrh. heimilað Vatnsleysustrandarhreppi að taka eignarnámi vatnsréttindi, land, aðstöðu og önnur réttindi sem nauðsynleg eru vegna byggingar álvers á Keilisnesi og hafnar vegna þess.``
Það væri nú fróðlegt fyrir hv. þm. Pál Pétursson að fara aðeins yfir landkosti þarna á Keilisnesi. Ég veit ekki hvort hv. þm. hefur lagt leið sína þangað til að kanna þessa væntanlegu landareign ríkisins, sem á að falla til ríkisins ef þeir kastalar verða ekki reistir sem hæstv. iðnrh. dreymir um og reyndar þingmenn Framsfl.að því er virðist í auknum mæli. Það væri rétt fyrir hv. þm. Pál Pétursson að líta yfir jarðabækur sem lýsa landgæðum á Keilisnesi. Ég skal ekki fara langt út í þá sálma, en vegna þess að þarna á að afla heimilda til eignarnáms á alls kyns réttindum, þar á meðal vatnsréttindum, þá gríp ég hér aðeins niður í Jarðabók Árna Magnússonar á sínum tíma. ( Gripið fram í: Það er mjög traust heimild.) Mjög traust heimild, svona rétt upplýsandi, Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns um landgæðin í Flekkuvík. Þar segir um Flekkuvík:
,,Jarðardýrleiki er óviss því jörðin tíundast öngvum. Kúgildi þrjú. Leigur betalast í smjöri heim til staðarhaldarans. Kúgildin uppyngir ábúandinn uppbótarlaust í næstu ellefu ár.`` --- Það verður væntanlega fjmrh. framtíðarinnar sem fær þetta verkefni, að uppyngja kúgildin næstu árin á Keilisnesi. --- ,,Selstöðu á jörðin og brúkar þar sem heitir Flekkuvíkursel. Eru þar hagar viðsæmandi en stórt mein að vatnsleysi og báglegt eldiviðartak.`` --- Og það á að fá hér eignarnámsheimild sérstaklega fyrir vatnsréttindum. --- ,,Rekavon í minnsta lagi. Skelfiskfjara nokkur, en eyðist fyrir ágang annarra jarða. Torfrista og stunga í lakasta máta, varla nýtandi. Lyngrif mjög lítið og langan veg í burtu. Engjar eru öngvar, úthagar lakir, vatnsból þrýtur bæði sumar og vetur.``
Þetta eru landgæðin sem á að afla lánsfjárheimildar til og eignarnámsheimildar hér á Alþingi Íslendinga og gjalda fyrir allt að 300 millj. kr. samkvæmt tillögu hæstv. iðnrh. ( ÓÞÞ: Ja, dýr eru kúgildin.) Minni-Vatnsleysa sem þarna er nefnd, ekki er það nú mikið björgulegra þar ef frá er talið svínabúið sem á að leggja í eyði sem nú er. --- ,,Jarðardýrleiki er óviss. Kúgildin uppyngir ábúandinn í næstu ellefu ár uppbótarlaust.`` --- Það verður verkefni fjármálaráðherra framtíðarinnar. --- ,,Kvaðir eru eitt mannslán af báðum um vertíð. Item tveir hrysshestar og tveir dagslættir heim til Bessastaða og fæða bændur verkamanninn.`` --- Þannig að fjmrn. verður að leggja til a.m.k. dagpeninga ríflega fyrir sláttumenn sem eiga að slá í túni á Bessastöðum því að kvaðir þessar eru auðvitað allar enn þá í gildi, meira og minna a.m.k. --- ,,Torfrista og stunga í lakasta máta, varla nýtandi. Eldiviðartak af fjöruþangi naumlega bjarglegt annað hvert ár, en annað hvert ár verða menn með stóru erfiði að reyta hrís til eldiviðar úr almenningum. Rekavon lítil, sölvafjara nær engin, skelfiskfjara hefur verið en nú aldeilis eyðilögð`` o.s.frv.
Ekki fæ ég séð, virðulegur forseti, að betur standi til með landkosti á Stóru - Vatnsleysu því að þar kveður í rauninni mjög við hið sama og í lýsingu á hinum jörðunum tveimur, en ég held að þetta ætti að hvetja hv. fjh. - og viðskn. og formann hennar til að draga þessa brtt. hiklaust til baka, a.m.k. að efna til skoðunarferðar nefndarinnar yfir á Keilisnes til að kanna hvort eitthvað hafi aukist landkostirnir frá þeirri lýsingu sem hér er upp dregin af þeim sannsöglu og skilvísu mönnum Árna Magnússyni og Páli Vídalín á sínum tíma.
Nei, virðulegur forseti. Það gildir auðvitað nákvæmlega það sama um þá heimild sem þarna er verið að afla að hún er gjörsamlega þarflaus, tillagan er gjörsamlega þarflaus og raunar skaðleg einnig með tilliti til hugsanlegra samninga þeirra sem vilja koma upp þessari álbræðslu. Ég minni á það sem fram kom hér einmitt við þessa umræðu af hálfu hæstv. forsrh. í sambandi við hafnargerð í Þorlákshöfn vegna hugsanlegrar verksmiðju sem þar ætti að rísa. Hvað sagði hæstv. forsrh. hér úr þessum ræðustól í gær held ég hafi verið, yfirlýsingu þar að lútandi? Það er engin þörf að vera að afla lánsfjárheimildar vegna þessarar verksmiðju í Þorlákshöfn sem ekki hefur verið samið um, vegna þess að það tekur tvö ár að byggja verksmiðjuna ef til kæmi. Að hvaða leyti stendur öðruvísi á með þessa álbræðslu, álbræðsluhugmynd á Keilisnesi heldur en verksmiðjuhugmyndina í Þorlákshöfn sem hæstv. forsrh. telur enga þörf að taka inn heimildir um hér í sambandi við afgreiðslu þessa máls?
Virðulegur forseti. Það væri þörf á því að rekja hér nánar t.d. með tilvitnunum í orð hæstv. iðnrh. í síðasta mánuði þegar hann kom úr vesturreisu eftir að hafa kreist forráðamenn Alumax til þess að gefa út með sér enn eina yfirlýsinguna, sameiginlegu yfirlýsinguna til þess að reyna að láta líta svo út sem hér séu að fæðast samningar um álbræðslu. Og það væri þörf á því einnig að leiða til vitnis talsmenn Landsvirkjunar á þeim tíma þar sem kveður við allt annan tón heldur en hjá hæstv. iðnrh. sem gengur manna röskast fram í því að þröngva mönnum til fylgilags við sig í þessu máli, nauðuga ef ekki vill betur. Það gerði hann sl. haust þegar hann var að efna í plaggið góða, 4. okt., sem hæstv. forsrh. hefur kallað ekki mjög virðulegum nöfnum að undanförnu og það var endurtekið þar vestra um miðjan febrúar. Og enn á að þröngva Alþingi Íslendinga til að fara að veita hér heimildir, stórar upphæðir til heimilda inn í lánsfjárlög fyrir þetta ár þegar fyrir liggur m.a. að stjórn Landsvirkjunar frábiður sér að fara að eyða meira fjármagni að þarflausu í frekari framkvæmdir við undirbúning virkjana nema þá að fyrir liggi fyrirvaralaus rafmagnssamningur og hefur það ákvæði verið upp tekið í brtt. sem hér liggur fyrir frá hv. þm. Ragnari Arnalds í sambandi við þetta mál.
Ég hvet hv. þm. til að litast um betur áður en þeir fara að greiða þessum tillögum atkvæði. Ég hvet þá til þess að átta sig á því á hversu feysknum stoðum
þessi tillögugerð öll er reist, en fari svo mót vonum að hv. þingdeild veiti þessum þrábeiðnum hæstv. iðnrh. atkvæði sitt og meirihlutastuðning, þá óska ég eftir því að hæstv. forsrh. greini þingdeildinni frá því með hvaða hætti hann mundi halda á slíkum heimildum fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands á meðan hann gegnir því virðulega embætti sem nú er. Þar eð hæstv. forsrh. mun vera fjarri í embættisskyldum, virðulegi forseti, þá áskil ég mér rétt til þess að bera fram við hann spurningu þetta varðandi þegar hann kemur hér til þings innan tíðar, enda hygg ég að hæstv. forsrh. hafi komið þeim boðum til virðulegs forseta að hann óski eftir því að vera viðstaddur áður en umræðu lýkur hér í þingdeildinni um málið.