Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. um tekjuskatt. Þetta frv. felur í sér tvíþættar meginbreytingar. Í fyrsta lagi eru gerðar breytingar varðandi skattlagningu fyrirtækja. Þær eru þess eðlis að skattlagningin er löguð að þeirri ánægjulegu staðreynd að verðbólgan í landinu er nú lág eins stafs tala. Óbreyttar viðmiðunartölur og álagningartölur í skattkerfinu hefðu leitt til skattaíþyngingar hjá atvinnufyrirtækjum einfaldlega vegna þess að verðbólgan hefur lækkað.
    Þá eru einnig gerðar þær breytingar varðandi skattlagningu fyrirtækja að skattstofninn er breikkaður og prósentutalan er lækkuð. Það er í samræmi við þróun sem hefur verið í okkar helstu viðskiptalöndum og nokkuð oft hefur komið til umræðu hér á hv. Alþingi.
    Í raun má segja að þessi þáttur frv. feli annars vegar í sér aðlögun að þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn verðbólgunni og hins vegar nýjan áfanga í aðlögun íslenska skattakerfisins að skattlagningu atvinnulífs í okkar helstu viðskiptalöndum.
    Eins og menn muna þá voru afgreidd hér frá Alþingi lög um tryggingagjald fyrir áramót þar sem ýmiss konar gjöld atvinnufyrirtækja voru sameinuð í eitt gjald. Sú breyting var einnig liður í þróun skattkerfisins á Íslandi í samræmi við það sem gerst hefur í okkar helstu viðskiptalöndum.
    Í þeirri umræðu var lýst yfir að ætlunin væri að breyta þessum þáttum í skattlagningu atvinnulífsins, sem ég hef nú lýst, áður en þingi lyki. Þetta frv. er því staðfesting á efndum þeirra fyrirheita sem þá voru gefin.
    Seinni meginþátturinn í frv., eins og það var lagt fram upphaflega, felur í sér breytingar á skattaívilnunum vegna hlutafjárkaupa. Þar er annars vegar um að ræða það ákvæði að nauðsynlegt sé að hlutabréfin séu í eigu viðkomandi einstaklinga um ákveðinn tíma. Sú hugsun hvílir á bak við þessa breytingu og reyndar aðra einnig að ekki sé verið að veita hvata til hlutabréfakaupa í gegnum skattakerfið ef menn eru að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum sem eru þegar starfandi án þess að um nýtt hlutafé inn í fyrirtækin sé að ræða. En einnig er verið að lækka upphæðina sem kemur til frádráttar, m.a. vegna þess að athuganir hafa leitt í ljós að skattareglur t.d. OECD eða á væntanlegu evrópsku efnahagssvæði fela í sér að slíkar ívilnanir eru í reynd skilgreindar sem ríkisstyrkur til fyrirtækja og skekkja þannig samkeppnisstöðu og eru talin ósamrýmanleg nútímaviðskiptaháttum. Þess vegna töldum við eðlilegt að stíga vissan áfanga í þá átt að lækka þessa ívilnun sem undirbúningsaðgerð að þeim breytingum sem okkar skattakerfi þarf að taka á næstu árum.
    Í Ed. voru í meðferð málsins einnig gerðar nokkrar viðbótarbreytingar sem m.a. fela í sér breytingar á ákvæðum vegna skila á framtölum og náðist um það gott samkomulag í deildinni. Hins vegar er um að ræða breytingar á skattaákvæðum vegna uppkaupa ríkisins á fullvirðisrétti á næstu missirum.

    Ég vona, virðulegi forseti, að þetta frv. fái jafngreiða og góða afgreiðslu hér í þessari hv. deild og það fékk í Ed. og mælist til þess að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.