Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Hér er eingöngu um að ræða fylgifrumvarpi með því frumvarpi sem rætt var fyrir stundu síðan. Ég tel í sjálfu sér ekki þörf á því að hafa fleiri orð um það, en mælist til þess að því verði jafnframt vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr. þannig að nefndin hafi tækifæri til að skoða þessi frumvörp saman.