Skaðsemisábyrgð
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Á þskj. 1041 er nál. fjh.- og viðskn. um frv. til laga um skaðsemisábyrgð. Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Jón Finnbjörnsson héraðsdómara og Arnljót Björnsson lagaprófessor. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.
    Undir nál. rita Ólafur Þ. Þórðarson, Friðrik Sophusson, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Ragnar Arnalds, Matthías Á. Mathiesen, Guðný Guðbjörnsdóttir og Páll Pétursson.