Ragnar Arnalds :
    Ég tel það fjarstæðu að í loðnuflotanum séu verst settu skipin í íslenska sjávarútvegsflotanum og ég tel það alrangt að nokkuð réttlæti það að eyðileggja Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins með þeim hætti sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Ég tel að aðrar leiðir hefðu verið finnanlegar og heppilegri til að leysa þann vanda sem þarna er við að glíma. Hótanir hæstv. sjútvrh. um almenna skerðingu á veiðiheimildum alls flotans eru svo fráleitar frá mínu sjónarmiði séð að mér dettur ekki hug að hann léti nokkru sinni verða af slíkri hótun. Ég segi nei.