Sighvatur Björgvinsson :
Virðulegi forseti. Með þessari afgreiðslu er verið að eyðileggja Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins sem var eitt af þeim atriðum sem við alþýðuflokksmenn lögðum mesta áherslu á í fyrra við afgreiðslu frv. um stjórn fiskveiða. Það er verið að stefna því í hættu að þau lög fái nokkurn tímann að komast til framkvæmda. Með því er verið að svipta fólk í sjávarplássum þar sem atvinnuörðugleikar eru hinstu voninni um að hægt verði að liðsinna því á þessu ári. Ég segi nei.