Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
Virðulegi forseti. Í svo mikilvægu máli sem hér er um að tefla verður að sjálfsögðu jafnan að leitast við að ná sem víðtækastri samstöðu innan ríkisstjórna. Eins og kom fram í máli hæstv. forsrh. getur enginn bundið aðra flokka að því hvernig þeir leita samráðs við sína þingflokka og það liggur alls ekki í þessari tillögu að það sé verið að ákveða eitthvert neitunarvald fyrir einstaka þingflokka þeirra stjórnmálaflokka sem að þessari stjórn standa.