Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Fulltrúa Sjálfstfl. skorti ekki kjark til þess á sínum tíma að veita yfir 100% ríkisábyrgðir gagnvart Spánartogurunum sem fluttir voru til Íslands. Það er staðreynd að það hótel sem hér er til umræðu er þriðja hótelið sem verður til þess að einstaklingur tapar öllu sínu fé. Ég er ekki nógu kunnugur þessu máli til að geta tekið afstöðu til þess og greiði ekki atkvæði.