Ragnhildur Helgadóttir (um atkvæðagreiðslu) :
Herra forseti. Mér virðast hafa orðið á mistök í atkvæðagreiðslunni. Þau varða 28. gr. sem fjallar um framlag til Framkvæmdasjóðs aldraðra og skerðingu þeirrar fjárhæðar sem þangað hefði átt að fara að réttu lagi. Í grg. frv. stendur að verði gerð breyting á hlutverki þessara sjóða, þar á meðal Framkvæmdasjóðs aldraðra, geta þessi ákvæði fallið niður í meðförum Alþingis. Með öðrum orðum held ég að það hafi af misgáningi verið samþykkt skerðing á Framkvæmdasjóði aldraðra sem þegar er búið að skerða með sérstökum lögum og þótti okkur mörgum nú þá nóg að gert og meira en það. Ég held að þetta sé hreinn misgáningur, herra forseti, og vildi vekja athygli á þessu. Nema um misskilning minn sé að ræða og að þetta lagafrv. hafi strandað í Ed. eins og fleiri góð frv. En mér virðist þetta vera svona og óska leiðréttingar ef það er ekki og óska reyndar líka leiðréttingar ef þetta er rétt að það megi þá leiðréttast við 3. umr.