Opinber réttaraðstoð
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Friðrik Sophusson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég hefði óskað eftir því að hæstv. forsrh. gæti verið viðstaddur þessa umræðu því hún snertir óneitanlega verkstjórn síðustu klukkustundirnar hér í þingi og þá samninga sem menn telja sig hafa gert sín á milli varðandi þinglok, þannig að mér þætti vænt um, ef hægt er að ná til hæstv. ráðherra, að hann væri hér viðstaddur.
    Það er þannig, virðulegi forseti, að það eru auðvitað fjölmörg mál sem hafa ekki hlotið afgreiðslu á þessu þingi, bæði mál hæstv. ríkisstjórnar og eins stjórnarandstöðunnar. Ég hygg að við getum öll verið sammála um það að flest þessara mála eru góð mál og flest þessara mála eru þannig að það eru fjölmargir úti í þjóðfélaginu sem bíða eftir því að þau verði að lögum, enda hafa málin yfirleitt verið þannig sem við höfum flutt í vetur. Þótt við séum ekki sammála nákvæmlega um efnisatriði þeirra, þá eiga þau það sammerkt að einhverjir þingmenn a.m.k., alla vega flutningsmennirnir, telja að það sé gagnlegt fyrir þjóðina að setja lög um viðkomandi málaflokka. En það er nú einu sinni svo að jafnvel þótt búið sé að vinna mikið starf að samningu frumvarpa, með kynningu á þeim, með nefndastörfum, þá er sú vinna ekki ónýt einfaldlega vegna þess að hún kemur til góða næst þegar málið er tekið upp. Ég á von á því að það verði haldið áfram að kalla saman Alþingi eftir næstu kosningar, jafnvel þótt það fari þannig að ekki komist allir að þegar kosið verður næst. Ég er sannfærður um það að þau mál til að mynda sem hæstv. dómsmrh. hefur flutt, sem eru mörg hver um mikilvæg efni, eru þannig vaxin, þau sem ekki urðu að lögum, að vinnan við þau kemur að gagni og það verður auðveldara fyrir næsta þing að ræða málin og komast að niðurstöðu fyrr en ella. Þetta vita þingreyndir menn sem hafa setið á þingi árum saman að það tekur stundum meira en eitt ár eða tvö að koma góðum málum fram.
    Nú virðist það vera þannig, þrátt fyrir að formenn þingflokka og hæstv. forsrh. og reyndar forsetar Alþingis hafi reynt að gera með sér samkomulag um þinglokin, að samkomulagið haldið ekki eða a.m.k. einhver misskilningur sé um hvað samið hefur verið. Ég hef ekki verið á þeim samningafundum sem um þessi mál hafa fjallað þannig að ég get ekki efnislega dæmt um það hver sé niðurstaða hv. þingflokksformanna og hæstv. forsrh. og annarra þeirra sem að þessum málum hafa komið.
Mér er hins vegar ljóst að til þess að hægt sé að ljúka þingi á þeim tíma sem hæstv. forsrh. --- væntanlega fyrir hönd hæstv. ríkisstjórnar sinnar --- vill, ef hann ætlar að gera það í kvöld eða á þeim tíma sem hann hefur óskað eftir, þarf að stytta þann lista sem nú bíður afgreiðslu. Mér er auðvitað fullkunnugt um það að það mun bitna ekkert síður á stjórnarandstöðunni en stjórnarflokkunum. Það er einu sinni þannig að þegar tíminn er skammur þarf víðtækt samkomulag til þess að hægt sé að slíta þingi á einhverjum tilteknum tíma sem hæstv. forsrh. hefur valið.

    Við höfum reyndar fyrr í dag samþykkt frv. til stjórnarskipunarlaga. Samkvæmt stjórnarskránni skal rjúfa þing þegar það hefur verið gert. Hins vegar eru mýmörg dæmi þess að nokkrir dagar hafa liðið frá því þing hefur samþykkt breytingar á stjórnarskránni og þar til þing var rofið en það er auðvitað skylda að rjúfa þing þegar um er að ræða stjórnarskrárbreytingar. Þetta segi ég vegna þess að í raun og veru höfum við meiri tíma en í kvöld ef menn ætla að fara að taka upp samkomulag sem gert hefur verið og ræða og afgreiða fleiri mál en hingað til hefur verið rætt um. Sé svo, þá skulum við gefa okkur tíma til þess, ekki setja okkur mörk sem við getum ekki staðið við, heldur vinna almennilega að þeim málum sem til umræðu eru.
    Í síðustu viku voru þingfundir öll kvöld vikunnar og stundum langt fram á nótt. Allir þessir fundir voru haldnir vegna þess að bæði stjórn og stjórnarandstaða kepptust við að halda fundi eins lengi og kostur var vegna þess að hæstv. forsrh. hafði sagt að hann áætlaði að slíta fundi sl. föstudag. Það tókst ekki. Ég spyr: Var það stjórnarandstöðunni að kenna? Var það Sjálfstfl. að kenna? Ég hygg að svo sé ekki. Ég held að ástæðan hafi verið sú að stjórnarflokkarnir komu sér ekki saman innbyrðis um það hvernig þeir vildu láta þinginu ljúka. Þess vegna vorum við látin sitja hér undir ræðum stjórnarsinna, hv. þm. stjórnarinnar, sem deildu á sína eigin ríkisstjórn langt fram á nætur. Af stakri þolinmæði sátum við undir þessu, hv. þm. Sjálfstfl., vegna þess að við töldum eðlilegt að þing yrði rofið í lok síðustu viku eða a.m.k. snemma í þessari viku. Það var þingfundur í gærkvöldi og það er þingfundur í kvöld og ef nú á að fara að taka upp ný mál til umræðu þá þýðir það að við verðum hérna fram eftir nóttu og væntanlega á morgun líka því ég efast um að hæstv. forsrh. vilji hafa þau lok á þessu þingi að hann rjúfi það um hánótt, rétt eins og um eitthvert myrkraverk sé að ræða. Ég þekki hæstv. forsrh. illa ef hann vill skilja þannig við þetta kjörtímabil.
    Mér finnst, virðulegi forseti, mál standa þannig núna að það sé full ástæða til þess fyrir hæstv. forseta deildarinnar að kanna hvort ekki sé hægt að ná samkomulagi, ekki einungis milli einstakra stjórnarflokka heldur milli þingflokkanna allra, um þinglok hér í kvöld og nú þegar. Ef slíkt samkomulag næst ekki óska ég eftir því að fundum verði ekki haldið áfram í kvöld, sjötta kvöldið í röð, einfaldlega vegna þess að þá skulum við gefa okkur tíma og taka nokkra daga í þetta í viðbót. Ég veit að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hefur sagt að honum liggi ekkert á að fara í frí, ( HG: Tel það ekki eftir mér.) hann telur það ekki eftir sér og ég veit að ef hæstv. forsrh. kannar hug ýmissa stjórnarþingmanna fær hann fljótlega vitneskju um það að margir þeirra vilja sitja áfram. Sumir þeirra vildu helst ekki hafa neinar kosningar, ég trúi því, því þeir eru hræddir við að falla í kosningum sem fram undan eru. Og það kann að vera meginskýringin á því að ýmsir vilja nú fara að troða málum í gegn, málum sem ugglaust eiga eftir að fara í gegnum þingið, bara ekki á þessu þingi. (Gripið

fram í.) Þótt voldugir séum við þá getum við ekki endurreist menn, það gerist ekki nema við sérstakar aðstæður í einstaka flokkum, þeim flokkum sem mest mega sín, eins og ég býst við að hv. þm. hafi átt við í sínu frammíkalli. Það má kannski boða þá trú, virðulegi forseti, ef það bætir eitthvað fyrir þinghaldinu að gefa mönnum von og trú með því að benda á að sá sem hér stendur var endurreistur í sínum flokki og hver veit nema annarra bíði nýtt líf, jafnvel þótt þeir hverfi af vettvangi um sinn. Vona ég að þetta skiljist sem hæg huggunarorð fyrir hæstv. dómsmrh. sem nú virðist berjast fast fyrir því að fá eitt eða tvö mál í gegnum þingið, sjálfsagt vegna þess að hann á ekki von á því að sitja í sínu ráðherrasæti á næsta kjörtímabili.
    Aðalatriðið er að það er fjöldinn allur af málum sem bíður úrlausnar, ekki aðeins þetta sem hér á að fara að ræða heldur fjölmörg önnur, og við verðum að átta okkur á því að það er ekki hægt að ljúka þinginu með góðu nema fullt samkomulag sé á milli þingflokkanna. Ef það er ekki er aðeins ein lausn til, það er að fresta þessum fundi eða slíta honum og efna síðan til nýs fundar á morgun og við skulum þá gefa okkur nægan og góðan tíma til þess að ljúka þeim störfum sem hér eiga að fara fram með þeim hætti sem okkur sæmir.
    Ég skora því á hæstv. forseta að kanna það nú rækilega, bæði hjá hæstv. forsrh. og þingflokksformönnum, hvort ekki sé hægt að ná góðu og víðtæku samkomulagi um þinglokin þannig að við getum með sóma látið þingrof fara fram síðar í kvöld.