Forseti (Árni Gunnarsson) :
Forseti vill biðja hv. þm. að hafa nokkurt hóf á þessari þingskapaumræðu því við höfum hið mesta verk að vinna hér í kvöld ef við ætlum að ljúka þingi. Enn þá eru þrír á mælendaskrá um þingsköp. Forseti hafði varað við því að þessi þingskapaumræða færi fram ef 5. dagskrármálið yrði tekið á dagskrá. Forseti telur stöðu þess máls þannig nú að harla tilgangslítið sé að reyna að taka það á dagskrá til umræðu. Það er alveg ljóst að hv. stjórnarandstaða mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að málið nái fram að ganga. Þetta er skoðun forseta og mun hann fresta umræðu um 5. dagskrármálið þegar þingskapaumræðu er lokið.
Varðandi spurninguna um það hvort ekki væri rétt að fara að semja um framgang þingmála að öðru leyti, þá veit forseti ekki betur en að þær samningaumræður og viðræður á milli flokka séu í gangi að meira eða minna leyti. Aðrir kunna að svara betur fyrir það en forseti.