Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Sighvatur Björgvinsson :
    Virðulegi forseti. Það eru aðeins örfá orð. Sú afgreiðsla sem fram hefur farið á lánsfjárlagafrv. hér á hinu háa Alþingi er ekki dæmalaus, langt því frá, það eru mörg dæmi um slíka afgreiðslu, en hún er engu að síður gagnrýnisverð. Hún er gagnrýnisverð fyrir þær sakir í fyrsta lagi að þarna á sér stað afgreiðsla sem að verulegu leyti fer inn á afgreiðslu fjárlaga sem hv. Alþingi hefur þegar afgreitt til fullnustu, eins og hv. alþm. stóðu í trú um þegar þeir afgreiddu fjárlagafrv., og það er ekki eðlilegt að hefðbundin fjárlagaafgreiðslumál skuli með þessum hætti vera sett inn í lánsfjárlög og í lánsfjárafgreiðslu eins og nú hefur verið gert. Það eru mörg dæmi um að þetta hafi verið gert, þannig að þetta er síður en svo einsdæmi, en þetta er mjög gagnrýnisvert. Þá er það einnig mjög gagnrýnisvert í því sambandi þegar litið er til ýmissar áformaðrar lántöku í þessu frv. Ég vil t.d. benda á, herra forseti, að það liggur ekki fyrir og virðist ekki vera hægt að fá það upplýst nú á þessari stundu hversu mikil áform eru samtals um auknar lántökur í þessu frv., í fyrsta lagi umfram það sem fjárlög gerðu ráð fyrir fyrir A-hluta ríkissjóðs og í öðru lagi umfram það sem lánsfjárlagafrv. gerði ráð fyrir þegar það var lagt fram hér á hinu háa Alþingi fyrir nokkuð löngu síðan, þannig að það virðist ekki liggja fyrir nein niðurstaða um þær viðbótarskuldir og ábyrgðir í heild sem ríkissjóður er með þessu móti að taka á sig. Í þriðja lagi er það gagnrýnisvert af þeim sökum að það er löngu kominn tími til að endurskoða þá tvöföldu afgreiðslu á fjárreiðum ríkisins sem á sér stað annars vegar í fjárlögum og hins vegar í lánsfjárlögum. Það er orðið tímabært að fella þá afgreiðslu sem hér á sér stað, að vera að afgreiða lánsfjárlög með þeim hætti sem hér er gert þar sem sá veigamikli þáttur í ríkisbúskapnum er afgreiddur með allt öðrum hætti og með allt öðrum svip heldur en fjárlagaafgreiðslan. Þetta á heima í einni og sömu afgreiðslunni í einni og sömu meðferðinni en ekki með þeim hætti sem hér er gert.
    Ég vil vekja athygli á því í lokin að fjárveitinganefndarmenn hafa nú á tveimur þingum lagt fram frv. um greiðslur úr ríkissjóði í því skyni að þetta fáist leiðrétt. Því miður hefur þetta frv. ekki náð fram að ganga, hvorki á þessu þingi né hinu næsta. En það er löngu orðið tímabært að þeirri afgreiðslu sem hér fer fram sé breytt og horfið sé frá því ráði sem setur svip sinn á þessa lánsfjárlagaafgreiðslu.