Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Alexander Stefánsson :
    Herra forseti. Það hefur komið í ljós að ekkert samráð hefur verið haft við aðila vinnumarkaðarins um þær breytingar sem þetta frv. gerir ráð fyrir þrátt fyrir að fjármagn til húsnæðiskaupa kemur að mestum hluta frá lífeyrissjóðum launþega og atvinnurekenda.
    Einnig hefur komið fram að þingkjörin húsnæðismálastjórn hefur takmarkað komið að þessu frv. Ég tel augljóst að húsnæðiskerfið í heild hefur verið stórskaðað á þessu kjörtímabili með sífelldum breytingum á hverju þingi allt kjörtímabilið. Því er nauðsyn að stöðva þessar breytingar og gefa sér tíma til að hefja gagngera endurskoðun á húsnæðiskerfinu. Ég segi já.