Greiðslujöfnun fasteignaveðlána
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. meiri hl. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1089 frá meiri hl. félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga, nr. 63/1985.
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Sigurð E. Guðmundsson, Þráin Valdimarsson og Yngva Örn Kristinsson frá Húsnæðisstofnun ríkisins, Grétar Guðmundsson, aðstoðarmann félmrh., Ásmund Hilmarsson og Gylfa Guðmundsson frá Alþýðusambandi Íslands.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá efri deild.``
    Undir nál. rita Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Jón Kristjánsson og Alexander Stefánsson.