Greiðslujöfnun fasteignaveðlána
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Geir H. Haarde :
    Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að lýsa stuðningi við þetta frv. Þó svo að við hv. þm. Eggert Haukdal höfum ekki skrifað á nál. og ekki skilað sérstöku nál. tel ég rétt og eðlilegt miðað við núverandi aðstæður að þetta frv. nái fram að ganga.