Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Á þskj. 1099 er nál. um 450. mál, sem er frv. til laga um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, og þetta er álit fjh.- og viðskn. sem hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 1084.
    Friðrik Sophusson hefur gert fyrirvara um 2. gr. frumvarpsins, Matthías Bjarnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nál. rita Ólafur Þ. Þórðarson, Friðrik Sophusson, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Guðný Guðbjörnsdóttir, Ragnar Arnalds og Páll Pétursson.