Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Á þskj. 1098 er nál. um frv. til laga um breyting á lögum nr. 9 2. mars 1989, um efnahagsaðgerðir. Þetta er álit meiri hl. fjh.- og viðskn. sem hefur fjallað um frv.
    Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 998. Minni hl. nefndarinnar skilar ekki áliti en vísar til brtt. minni hl. í Ed. á þskj. 932.
    Undir þetta rita Ólafur Þ. Þórðarson, Ragnar Arnalds, Guðný Guðbjörnsdóttir, Jón Sæmundur Sigurjónsson og Páll Pétursson.