Forseti (Árni Gunnarsson) :
Nú stendur svo á að aðeins er eftir að afgreiða eitt mál á 77. fundi. Hér eru þegar fram komnar við 3. umr. tvær brtt. og þarf því að fara fram atkvæðagreiðsla hér, og von er á þeirri þriðju sem ekki er enn þá fram komin. En á meðan við dokum eftir henni og áður en við leitum afbrigða svo að þessar tillögur megi koma á dagskrá tekur til máls hv. 2. þm. Reykv.