Ragnhildur Helgadóttir :
Herra forseti. Fyrir skömmu síðan stóð ég hér í þessum ræðustól og gagnrýndi það að ýmis efnisatriði vantaði í þetta frv. sem við fjöllum hér um. Áður hafði það verið gagnrýnt að á skorti að gert hefði verið samkomulag við þá sem eiga að borga brúsann eða meginhlutann um það hvernig skipta ætti framkvæmdum í áfanga þannig að við sæjum nú þegar fyrir endann á því hvernig þetta mætti allt saman gerast. Við lýstum því yfir í Sjálfstfl. og þeir sem töluðu fyrir hönd Sjálfstfl. að mörg atriði væru í þessu frv. sem horfðu mjög til bóta enda væru þau í fullu samræmi við það sem við höfðum oft áður haldið fram hér á þingi og sett fram í frv. okkar og till. Hins vegar væru önnur ákvæði í þessu frv. sem beinlínis hefðu í för með sér afturför frá núgildandi lögum eða þá að þau reyrðu hugsanlegt frumkvæði í skólunum um of í fjötra eða heftu frumkvæði. Með öðrum orðum að sum ákvæði í frv. gætu orðið til þess að hefta skólaþróun þegar önnur ákvæði miðuðu að því að greiða fyrir henni. Þess vegna var það að við töldum frv. í raun og veru alls ekki fullunnið þegar því var hespað út úr neðrideildarnefndinni á sínum tíma. Þá vannst ekki tími til fyrir 2. umr. málsins að vinna þær miklu og margbrotnu brtt. sem við töldum að þyrfti að gera á frv. og því lögðum við til að málinu væri vísað til ríkisstjórnar í trausti þess að unnið væri betur úr þessum efnivið. En nú hefur það gerst að fjöldi brtt. sem sjálfstæðismenn hafa flutt á fyrri þingum og sem sjálfstæðismenn hafa viljað fá fram á þetta frv., hafa verið fluttar ýmist í nafni hæstv. menntmrh., eða þá í nafni menntmn. efri deildar. Allar þessar brtt. er mér óhætt að segja að eigi uppruna sinn í Sjálfstfl. og við getum auðvitað ekki annað en verið mjög ánægð með það að á það skuli vera fallist. Ég vil hlaupa í mjög stuttu máli á þessum tillögum, eins og sagt er stundum, því að mér þykir ekki ólíklegt að einhverjar spurningar vakni í hugum hv. þm. þegar svo gagngerar breytingar hafa orðið á frv. frá því sem var nú fyrir nokkrum dögum þegar engu mátti breyta. En nú hefur þetta sem betur fer stórbatnað.
Í fyrsta lagi var það samþykkt í efri deild að fellt yrði niður orðið ,,heildstæður`` í 3. gr. frv. Það var vegna þess að við í Sjálfstfl. töldum afturför fólgna í því ef banna ætti það í raun og veru að skólar gætu starfað fyrir eitthvert tiltekið aldursskeið, við skulum segja sérstakan hverfisbundinn skóla fyrir litlu börnin eða þá skóla sem starfaði aðeins fyrir börn 12 -- 14 ára eða hvað annað sem henta kynni í viðkomandi skólahverfi. Okkur þótti ástæðulaust að slá því föstu að slíkt væri óæskilegt. Það getur í mörgum tilvikum verið mjög æskilegt þó að oftast nær verði það svo að allir árgangar verði í sömu stofnuninni. Þess vegna var þetta fellt út.
Síðan var gerð breyting á skipan grunnskólaráðs samkvæmt frv. Þar var hlutur foreldra aukinn og í grunnskólaráð var bætt fulltrúa framhaldsskólastigsins en það vantaði í hugmyndirnar í upphaflega frv. og loks að einn fulltrúi væri óbundinn og skipaður af
ráðherra, sem er ekki óeðlilegt í svo fjölmennu ráði. Breytt var nafninu á skólaráði í 13. gr. frv. og það kallað samstarfsráð vegna þess að orðið ,,skólaráð`` kemur samkvæmt nýjum brtt. í annarri merkingu.
Við 16. gr. er í raun og veru aukinn möguleiki fræðslustjóra til að gera ráðstafanir beint án þess að þar sé sérstaklega tekið fram að hann þurfi samþykki menntmrn., enda var slíkt eins og það var hálfgerð endurtekning þar sem fræðslustjóri er embættismaður menntmrn.
Við 17. gr. var gerð sú breyting sem ég fagna sem Reykvíkingur. Sú skipan sem orðið hefði ef frumvarpsgreinin hefði verið samþykkt óbreytt hefði gert skipan skólamála í Reykjavík enn flóknari og það hefði þurft að skipta Reykjavík upp í mörg skólahverfi. En samkvæmt frv. er heimilt að sveitarfélag sem reki tvo eða fleiri grunnskóla sé eitt skólahverfi. Síðan eru felldar niður takmarkanir sem miðast við íbúafjölda.
Á eftir 19. gr. kemur ný grein sem er um títtnefnd skólaráð sem ég talaði um áðan, að það orð væri notað í nýrri merkingu. En þessi brtt. er orðrétt upp úr frv. sem Salome Þorkelsdóttir hefur flutt þing eftir þing og á rætur að rekja til hugmynda sem fram komu í fjölskyldumálanefnd forsrh. í tíð Þorsteins Pálssonar, en menn muna e.t.v. að hv. þm. Þorsteinn Pálsson skipaði í forsætisráðherratíð sinni sérstaka nefnd til að gera tillögur um bætta aðstöðu barnafjölskyldna. Það var eðlilegt að tillögur þeirrar nefndar hlytu mjög að lúta að ýmsu í skólastarfi og í samstarfi skóla og heimila. Enn fremur var þessi hugmynd líka í samstarfsnefnd heimila og skóla sem skipuð var af menntmrh. árið 1983, en einmitt hv. þm. Salome Þorkelsdóttir, sem flutti þetta frv., var formaður þeirrar nefndar.
Svo ég fjalli ekki nánar með almennum orðum um fleiri atriði sem vissulega væri vert þá vil ég halda áfram að víkja að brtt. Við höfðum í Sjálfstfl. lagt til í frv. sem við fluttum tvö ár í röð, um breytingu á grunnskólalögum, að vikulegur kennslustundafjöldi væri aukinn sem næst því nákvæmlega í það sama magn sem er greint frá í umsögn Kennarasambands Íslands eins og hún barst til menntmn. neðri deildar. Þar eru tillögur sem við teljum að séu mjög til bóta um kennslumagnið í bekkjum grunnskólans. Við höfðum hugsað okkur að leggja eindregið til að þessar tillögur yrðu teknar upp í menntmn. efri deildar. Það fékkst þó ekki en á það var fallist að breyta kennslumagninu sem gert er ráð fyrir í 45. gr. frv. á þann veg að það verði a.m.k. eins mikið og það er nú. Það er því alrangt, sem stundum hefur verið haldið fram, að í þessu frv. felist það að vikulegur skólatími barna sé aukinn. Það á einungis við um yngri árgangana. Það þveröfuga hefði gerst með fjóra efri bekkina, þeirra vikulegi kennslustundafjöldi hefði minnkað. Og það skýtur auðvitað skökku við þegar við erum t.d. hér á Alþingi sí og æ að fella þá skyldu á skólana að þeir skuli halda uppi fræðslu um eitt og annað nauðsynlegt í þjóðfélaginu ef skólunum er svo ekki séð fyrir kennslustundum til þess. Þess vegna var það algjörlega fráleitt að minnka kennslumagnið hjá börnum tíu ára og upp úr, enda var það minnkað frá því sem er í gildandi lögum þannig að að því leyti voru gildandi lög, þau sem er verið að breyta með þessum frv., langtum fremri. Auk þess er í þeim lögum heimild til þess að bæta við, lengja kennslutímann sérstaklega fyrir yngri börnin, en það atriði breytist í þessu við það að lágmarkskennslustundafjöldinn er aukinn hjá þeim. Það er þó fagnaðarefni að þessu er breytt frá því sem það var í frv. í upphafi.
Það eru örfá atriði enn, og ég fer nú mjög að stytta mál mitt, en það er óhjákvæmilegt að víkja að því máli sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson gerði hér að umtalsefni. Þar erum við líka að tala um eitt þeirra mála sem eiga rót sína að rekja til margnefndrar fjölskyldumálanefndar Þorsteins Pálssonar, eins og við kölluðum það í Sjálfstfl., en það er nefndin sem starfaði á vegum forsrn. í forsætisráðherratíð hans og gerði margar skynsamlegar tillögur um þessi málefni. En þetta er hugmyndin um skólaathvörf, sem við köllum svo, og eru í sjálfu sér ekki flóknara mál heldur en það að það er heimild til að nýta húsnæði skólans utan kennslutíma fyrir börnin, til einhverrar starfsemi sem börnunum er leiðbeint með eða þá að þau hafa aðstöðu til að vera þar og vinna að heimanámi sínu fyrir næsta dag. Það er alveg ljóst að þetta hefur nokkurn kostnað í för með sér, aðallega í mannahaldi. Við erum þeirrar skoðunar að það sé ekki skynsamlegt að skella inn í lögin slíkum breytingum án þess að hugsa eitthvað fyrir kostnaðinum og þess vegna lögðum við til, og það tók menntmn. efri deildar upp, að það væri heimilt að setja upp nokkurt gjald fyrir þessa þjónustu enda veit ég að það er fjöldi foreldra sem er mjög þakklátur fyrir að eiga kost á slíkri þjónustu þó að greitt sé fyrir, rétt eins og greitt er fyrir leikskólavist, dagheimilisvist og ýmiss konar ráðstafanir sem gerðar eru til öryggis og aðstoðar við uppeldi barna. Ég hygg að flest heimili sem hafa börn á sínu framfæri séu afar þakklát fyrir slíkt fyrirkomulag og það sé reyndar nauðsynlegt í nútímaþjóðfélagi þar sem báðir foreldrar vinna utan heimilis, oftast nær fullan vinnudag.
Við 50. gr. var fellt niður það fortakslausa ákvæði sem þýddi í raun og veru að engin námsgögn væru heimil í skólanum nema Námsgagnastofnun hefði látið þau í té. Við getum séð fyrir okkur mörg dæmi, sem við kannski vitum um, að velunnarar skóla hafa fært skólanum að gjöf kennslugögn fyrir fjölda nemenda, og það ætti frekar að vera hvati til slíks heldur en nokkuð sem hamlar þessu. Ég hugsa nú að kannski hafi það ekki verið ætlunin með þessu orðalagi, en það mátti vissulega skilja það svo og því er þessu breytt hér með.
Við 72. gr., um einkaskólann, er felld brott síðasta málsgreinin sem hefur að geyma ákvæði um það að menntmrn. verði að samþykkja skólagjald í einkaskóla. Það segir sig sjálft að þetta getur jafngilt því að menntmrn. geti með einu handarviki í þá áttina að hafna því skólagjaldi sem einkaskólinn telur nauðsynlegt beinlínis stöðvað starfsemi hans. Einkaskólinn
þarf að vísu að hafa leyfi til starfsemi sinnar þannig að tryggt sé að hann láti nauðsynlega fræðslu í té og það er tekið fram að hann eigi ekki kröfu til styrks af almannafé, en þá þykir okkur of langt gengið ef skólagjöld sem hann ákveður til þess að standa undir rekstrinum eiga líka að vera háð samþykki menntmrn. Þessi málsgrein var því felld brott í efri deild og við fögnum því.
Loks er við 74. gr. gerð breyting sem þýðir að það er heimild til að hafa mun færri börn í bekkjardeild fyrir sex ára börn heldur en hin sem eldri eru. Það sér hver það í hendi sér að börnum sem eru að koma beint úr leikskólanum, þar sem eru kannski þrjár fóstrur með 20 börn, bregður við þegar þau koma í bekk þar sem einn kennari er með 22 börn, þannig að þetta ákvæði er mjög til bóta.
Loks er það gildistakan. Henni er frestað frá því sem áður var meiningin og hún gefur svigrúm til að gera það líklegra að það sem snýr að sveitarfélögunum komi til framkvæmda í vissum áföngum og að það liggi fyrir nokkurn veginn fyrir fram hvernig það gerist.
Loks er síðasta brtt. við ákvæði til bráðabirgða. Þar eru felld brott orðin þar sem sagt er að auka eigi skólatímann þannig að hann verði 35 stundir á alla nemendur. Það atriði stenst ekki þegar litið er til breytingarinnar sem gerð var á 45. gr. og þýðir í raun og veru, eins og það var orðað, að skólatíminn megi ekki hjá neinum nemanda vera lengri en 35 stundir, en það er auðvitað fráleitt að því er varðar eldri árgangana.
Ég vil undirstrika það og ítreka að við teljum að frv. hafi stórbatnað við
þessar aðgerðir og orðið mun meira í stíl við það sem við höfum sjálf verið að leggja til í Sjálfstfl. og orðið afar líkt okkar gamla frv., enda teknar fleiri greinar og ákvæði inn í það sem eru einmitt tekin upp og eru í samræmi við önnur frv. um sama efni sem við höfum flutt. Þess er líka að geta að margar breytingar og þær mikilvægustu eru í samræmi við fjölmargar umsagnir sem við höfum fengið, einkanlega það sem varðar kennslumagnið, bæði frá Kennarasambandinu og fræðslustjórum. Fleiri atriði eru inni í þessu þar sem tekið er meira mið af umsögnunum en var við fyrri meðferð í neðri deild.
Ég vil leyfa mér að taka það fram í leiðinni að ég er innilega sammála brtt. hv. þm. Geirs H. Haarde. Það var eiginlega okkar vangá að hafa ekki athugað það. Það heyrist e.t.v. á máli mínu að við unnum saman fulltrúar Sjálfstfl. í menntmn. efri og neðri deildar að brtt. Í þeirri vinnu féll niður sú málsgrein úr brtt. Geirs H. Haarde sem varðar verkefni skólanefnda. En við erum þeirrar skoðunar að það sé eðlilegt að skólanefndir, þar sem sveitarfélögin eiga mikinn hlut að, fái meiri tillögurétt um innra starf skóla heldur en gert er ráð fyrir í frv. Ég tel það augljóst sanngirnismál og vera í samræmi við hin nýju verkefni sveitarfélaga í þessu sambandi.
Fleiri orð ætla ég ekki að hafa um þetta, herra forseti, nema sérstakt tilefni gefist.