Grunnskóli
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég vil leiðrétta þann misskilning að þetta fjalli um skóladansleiki eða sé eitthvað skylt þeim þó það sé það fyrsta sem kemur upp í huga hv. 4. þm. Norðurl. v. þegar hann hugleiðir þetta mál. Ég býst við að þetta mál muni fljótlega fara fyrir dómstóla, en ég segi að sjálfsögðu já.