Starfslok neðri deildar
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Ég þakka hv. 7. þm. Norðurl. e. kærlega fyrir þau hlýju orð sem sögð voru í minn garð hér og endurtek þær heillaóskir sem ég hef þegar flutt þingdeildinni, þakka þingdeildarmönnum fyrir samstarfið og fyrir að hafa tekið undir þau hlýju orð sem mælt voru til mín af hv. 7. þm. Norðurl. e.
    Þá er þessum fundi að ljúka og er raunar lokið. Fyrir honum liggur ekki fleira. Þakka ykkur enn á ný samstarfið. Fundinum er slitið.