Kosning í stjórnir og ráð
Miðvikudaginn 20. mars 1991


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Hver er það hér inni sem getur sagt um það hvenær þing verður kallað saman að loknum kosningum?
    Ef það er einhver þá langar mig til þess að heyra í honum. Ég held að það séu engar líkur, a.m.k. ekki skynsamlegar líkur fyrir því að þing verði kallað saman fyrir 1. júní ef maður tekur mið af því hvernig mál hafa þróast yfirleitt á eftir kosningum. Þessi málatilbúningur er því furðulegur og hlægilegur.