Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur um 1. til og með 4. dagskrármál, um kosningu í stjórnir og ráð, vill forseti segja þetta:
Haldinn hefur verið fundur með þingflokksformönnum og á þeim fundi náðist ekki samkomulag um að þessi kosning færi fram. Forseti hefur því ákveðið að verða við þeirri beiðni tveggja þingflokkanna að fresta þessum kosningum.