Halldór Blöndal :
Hæstv. forseti. Ég heyri að ýmsir þingbræður mínir og systkin taka stórt upp í sig nú og þykir mikið í húfi. Við skulum nú átta okkur á því hvað það er. Hér er verið að tala um kosningar í fjögur ráð og nefndir.
Í fyrsta lagi til Kísiliðjunnar til fjögurra ára, frá 20. apríl 1991. Það kom fram tillaga á fundi formanna þingflokka frá forsrh. hvort við gætum fallist á það að kosið yrði í Kísiliðjuna nú og vorum við reiðubúin til þess nema Kvennalistinn.
Jafnframt er hér talað um kosningu þriggja manna og jafnmargra varamanna í stjórn Viðlagatryggingar frá 27. maí. Þetta eru þær stjórnir tvær sem mest ríður á og auðvitað sérkennilegt að ekki náist samkomulag um að kjósa í stjórn þar sem umboð fellur niður sama dag og kosið verður. Á hinn bóginn erum við að tala um stjórn Landsvirkjunar og orkuráð. Þá erum við að tala um umboð frá 1. júlí 1991.
Það er yfirlýst af forustumönnum stjórnmálaflokka og vilji á Alþingi til þess að kalla þing saman að nýju að loknum alþingiskosningum til þess að staðfesta þau lög um stjórnarskrá sem nú hafa verið samþykkt. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að það þing taki ákvörðun um hvaða menn Alþingi skipar í ráð og nefndir eftir mitt þetta ár. Þá er komið nýtt Alþingi og það er í umboði þess Alþingis sem nýtt orkuráð tekur til starfa 1. júlí og ný stjórn Landsvirkjunar fær umboð 1. júlí. Við erum þess vegna, þegar við erum að tala um að fresta þessum kosningum, einungis að fylgja eftir þeirri hefð, sem löng er á Alþingi, að láta það þing sem næst er stjórnarskiptum í viðkomandi félagi eða ráði ákvarða hvaða menn skuli sitja þar í umboði Alþingis.
Ég verð að segja að umræður þessar allar hafa komið mér mjög á óvart. Mér þykir þetta satt að segja hálfleiðinlegur endir á þessu þinghaldi, hafði vænst þess að við gætum skilið sátt og vil ítreka það sem ég sagði á fundinum, ef það mætti verða til einhverra sátta, að að sjálfsögðu erum við sjálfstæðismenn reiðubúnir til þess að láta kjósa í þau ráð sem á liggur og eru í raun og veru á vettvangi þessa þings, en hitt orkar mjög tvímælis að þeir þingmenn sem nú eru að leita eftir endurkjöri eða bjóða sig ekki fram eigi að ráða því hvaða menn taka sæti í ráðum og stjórnum eftir mitt þetta ár, 1. júlí.