Guðrún Helgadóttir :
Ég bið hæstv. forseta afsökunar á að ég skuli biðja um að fá að gera aðra athugasemd, en aðeins svo að enginn sé að misskilja neitt. Þær upplýsingar sem hæstv. forsrh. fékk hjá starfsfólki Alþingis eru alveg réttar, en ég vil bara benda á að þær upplýsingar eru frá 10. janúar, bréfið er gefið út 10. janúar þannig að á það hefur ekki reynt enn þá svo að ég viti til. En fram að því hafa þessar reglur verið eins og ég áður sagði. En þegar ljóst var að forseti Hæstaréttar nýtur sömu dagpeninga og ráðherrar skilst mér að fjármálayfirstjórn þingsins hafi talið rétt að sama gilti um forseta þingsins. Þannig að það sé alveg ljóst að enginn hefur gefið neinum rangar upplýsingar.