Sektir vegna mengunarbrota á hafnarsvæðum
Fimmtudaginn 24. janúar 1991


     Flm. (Elín S. Harðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka þeim sem tekið hafa til máls um þessa tillögu og er mjög ánægð með þær undirtektir sem þetta mál hefur fengið hér. Ég treysti því að það fái góða málsmeðferð í nefnd og náist í höfn eins og hv. 18. þm. Reykv. komst svo vel að orði.