Ferill 11. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 11 . mál.
Nd.
11. Frumvarp til laga
um breyting á tollalögum, nr. 55 30. mars 1987, með síðari breytingum.
Flm.: Ingi Björn Albertsson.
1. gr.
2. mgr. 9. gr. falli brott.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
G r e i n a r g e r ð .
Á Íslandi er hið svokallaða „cif-verð“ innfluttrar vöru (cost, insurance, freight) lagt til grundvallar þegar tollverð er ákveðið. Það felur í sér að innflytjandi greiðir ekki einungis að greiða toll af innkaupsverði vörunnar heldur einnig af flutningsgjöldum, vátryggingum og öðrum kostnaði í sambandi við innflutninginn. Þessi regla kemur fram í 2. mgr. 9. gr. tollalaga þar sem segir að í tollverði skuli innifalið:
„a. Flutningskostnaður hinna innfluttu vara til innflutningshafnar eða innflutningsstaðar.
b. Gjöld fyrir fermingu, affermingu eða meðferð hinna innfluttu vara vegna flutnings þeirra til innflutningshafnar eða innflutningsstaðar.
c. Vátryggingarkostnaður.“
Þetta verður að telja í hæsta máta óeðlilega tollheimtu. Í fyrsta lagi er óréttlátt að innflytjandi greiði toll af kostnaði við að koma vörunni til landsins en ekki einungis af því verði sem hann greiðir hinum erlenda seljanda fyrir vöruna. Meginrökin gegn þessari tollálagningu innflutningskostnaðar eru þó að hún leiðir af sér hærra vöruverð í landinu. Íslenskir neytendur verða að greiða nógu hátt verð fyrir innflutta vöru og það er að bera í bakkafullan lækinn að flutningskostnaður og tengd gjöld séu reiknuð inn í tollverð vörunnar.
Samþykkt þessa frumvarps felur hins vegar í sér að miðað verður við „fob-verð“ innfluttrar vöru (free on board) þegar tollverð er ákveðið og því einungis reiknaður tollur af innkaupsverði vörunnar.