Ferill 12. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 12 . mál.


Nd.

12. Tillaga til ályktunar



um skipun nefndar skv. 39. gr. stjórnarskrárinnar til að rannsaka álmálið.

Flm.: Stefán Valgeirsson.




     Neðri deild Alþingis ályktar að skipa sjö manna rannsóknarnefnd samkvæmt ákvæðum 39. gr. stjórnarskrárinnar til að rannsaka og gefa Alþingi og almenningi skýrslu um alla þætti álmálsins, þ.e. vinnu að mögulegum samningi við Atlantsálshópinn, og hafi rannsóknarnefndin heimildir til að heimta skýrslur, munnlegar og bréflegar, af embættismönnum og öðrum sem upplýsingar geta gefið.
     Rannsóknin taki til allra þátta málsins, svo og reynslu Íslendinga og annarra af álrekstri, þar á meðal mengunar, arðgjafar og annars sem máli skiptir.
     Einnig skal nefndin afla ítarlegra upplýsinga, þar með talið álits hlutlausra kunnáttumanna, um öll meginatriði sem tengjast mögulegum álsamningi, svo sem: hvort bygging og rekstur álversins á þann hátt, sem helst er um rætt, samrýmist löggjöf landsins, þ.e. grundvallarákvæðum um jöfnuð manna í stjórnarskrá, skipulagslögum, lögum um varnir gegn mengun og um hollustuhætti og alþjóðlegum skuldbindingum Íslendinga. Einnig að greint verði frá líklegum áhrifum mengunar bæði við daglegan rekstur og möguleg mengunarslys. Loks taki skýrslan til allra meginatriða um arðgjöf álreksturs, bæði einstakra þátta hans en sérstaklega allra veigamikilla atriða í sambandi við orkusölu til álversins. Aðrir orkusölukostir verði kannaðir, svo og önnur atriði sem nefndin telur ástæðu til að kanna.


G r e i n a r g e r ð .


     Ástæður fyrir tillögu þessari eru margar og veigamiklar. Álverið og virkjanir, sem því tengjast, verða langstærsta framkvæmd á Íslandi til þessa og um ófyrirsjáanlega framtíð ef núverandi áform verða að veruleika, framkvæmd sem útilokar fjölmarga aðra atvinnumöguleika, bindur og mótar allt þjóðlífið í a.m.k. aldarfjórðung. Mikil mengun, sem spillir náttúru og lífi, fylgir álverinu. Líkur á stórauknum kröfum um alþjóðlegar mengunarvarnir og ný virk framkvæmd alþjóðareglna við Persaflóa gæti kippt stoðum undan álveri eins og því sem rætt er um að byggja. Einnig koma til líkleg skaðleg áhrif áls, t.d. í drykkjar- og matarílátum, sem draga verulega úr eftirspurn og verði áls og fleira mætti upp telja.
     Fjárhagsleg áhætta Íslendinga virðist margfalt meiri en áhættufé Atlantsálshópsins og arður miklu minni. Íslendingar þurfa að eyða bestu virkjunarkostum sínum án endurgjalds fyrir þá og það útilokar marga aðra vænlega kosti í atvinnumálum. Áhætta af kostnaði við virkjanir, umfram áætlaðan kostnað, svo og að virkjanir skili ekki áætluðu afli og afköstum, er öll á ábyrgð Íslendinga.
     Glöggir og varlegir útreikningar, byggðir á traustum gögnum, hafa ekki verið lagðir fram til athugunar fyrir almenning, heldur eru gefnar óljósar upplýsingar um „jaðarkostnað“ og „flýtingarkostnað“ Landsvirkjunar sem rök fyrir ágæti samningshugmynda.
     Samningaaðferðir íslenskra stjórnvalda virðast með eindæmum frumstæðar. Aðalsamningamaðurinn er allt í senn formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, formaður stjórnar Landsvirkjunar og formaður nefndar um orkufrekan iðnað og sætir í öllum greinum eftirliti eins og sama mannsins, þ.e. ráðherra viðskipta og iðnaðar. Ákvörðun um staðarval er kynnt ein sér eftir keppni milli þriggja héraða og fjármálaráðherra tilkynnir að samningar um skattamál hafi náðst eftir næturfund. Önnur meginatriði samningsins eru óumsamin. Iðnaðarráðherra skrifar undir áfangasamning án umboðs Alþingis, ríkisstjórnar eða Landsvirkjunar. Formaður stjórnar Landsvirkjunar sýnir stjórninni það virðingarleysi að staðfesta samninginn sem formaður viðræðunefndar um orkufrekan iðnað og á trúlega síðan að halda áfram viðræðum um þennan risavaxna samning við Atlantsálshópinn sem formaður stjórnar Landsvirkjunar.
     Framanritað, sem liggur fyrir opinberlega, lýsir svo vafasömum vinnubrögðum í málinu að fráleitt er að Alþingi taki ákvörðun um það nema að fengnum faglegum, traustum og varlegum álitum og upplýsingum.
     Raunar er mikilvægi hins mögulega samnings slíkt að óhjákvæmilegt verður að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um málið eigi það fram að ganga.
     Þarfir þjóðar og þings krefjast þess að rannsókn skv. 39. gr. stjórnarskrárinnar fari fram og skýrslan verði gerð áður en málinu er lokið á Alþingi.